Frjáls verslun - 01.12.1978, Blaðsíða 55
Stefnt að verulegum
hafnarbótum á Blönduósi
Hilmar Kristjánsson,
oddviti skýrir frá at-
vinnulífi og fram-
kvæmdum á Blöndu-
ósi í spjalli við Frjálsa
verzlun
— Ef segja á frá atvinnulífi hér,
sagði Hilmar, — verður fyrst að
geta kaupfélagsins og sölufé-
lagsins, eða samvinnufélaganna
eins og við köllum þau. Þau eru
lang stærsti atvinnurekandi hér
með stóra verslun, mjólkursam-
lag, sláturhús, veitingaskála og
eru aðilar að bílaverkstæði, tré-
smíðaverkstæði, plastverksmiðju
og fleiri fyrirtækjum. Þessi félög
hafa verið mjög virkir aðilar að at-
vinnulífinu hér og stutt við bakið á
uppbyggingu ýmissa fyrirtækja.
Eins hefur kaupfélagið stutt al-
menna uppbyggingu hér með
lánafyrirgreiðslum til húsbyggj-
enda.
— Annað fyrirtæki sem teljast
má stórt er Pólarprjón, en það
hefur valdið hér miklum breyting-
um á atvinnuþátttöku kvenna. Þar
vinna nú mjög margar konur, en
heildarstarfsmannafjöldinn mun
vera 50-60. Fyrirtækið hefur rokið
upp á fáeinum árum og er mikils
virði fyrir sveitarfélagið að hafa
það. Af iðnfyrirtækjum öðrum má
nefna Ósplast, en það framleiðir
skolþrör og plastpokaefni. Hrepp-
urinn á þetta fyrirtæki að hálfu og
við erum að vona að það eigi eftir
að vaxa og dafna. Hins vegar hefur
gengið upp og ofan að koma því af
stað og lánafyrirgreiðsla til þess
hefur verið ónóg. Stofnkostnaður
er mikill við svona fyrirtæki. Þá er
hér önnur plastverksmiðja, Trefja-
plast h.f. en það er í eigu margra
einkaaðila. Framleiðsla þess er
t.d. smábátar úr plasti, sundlaugar
og setlaugar, eða svokallaðir heitir
pottar. Þá er ótalið lítil saumastofa,
sem heitir Seta, en þar vinna 4-5
konur við aö sauma gallabuxur,
lúffur og ýmsan annan fatnað, sem
seldur er víða um land.
Fjölbreyttur þjónustuiðnaður
— Hér er einnig fjölbreyttur
þjónustuiðnaður, sagði Hilmar, —
trésmiðjur, bílaverkstæði, vél-
smiðjur og þvíumlíkt. Þá er gaman
að geta þess, að bakaríið hér
framleiðir kringlur fyrir mjög stórt
svæði, en þær eru seldar út í
Strandasýslu og allt austur til
Húsavíkur.
— Útgerð er hér að hefjast, en
hefur ekki verið stunduð hér að
marki áður. Rækjuvinnslan Særún
Frá Blðnduósi
55