Frjáls verslun - 01.12.1978, Blaðsíða 57
Vélsmiðjan Vísir vinnur
að lagningu hitaveitu
Eitt af elstu og rótgrónustu
fyrirtækjunum á Blönduósi er
Vélsmiðjan Vísir s.f. stofnuð 1943
og sífellt í örum vexti. Þrír bræður,
Þorvaldur, Pétur og Einar Þor-
valdssynir stofnuðu fyrirtækið og
eiga það. Þar er reksturinn nú tví-
þættur. Annars vegar vélsmiðjan,
hins vegar matvöruverslun. Á
skrifstofu fyrirtækisins hitti Frjáls
verslun verslunar- og skrifstofu-
stjóra fyrirtækisins Arndísi Þor-
valdsdóttur og sagði hún örlítið
frá fyrirtækinu og rekstri þess.
— I upphafi var hér bara vél-
smiðjurekstur, sagði Arndís, — en
bílaviðgerðir voru einnig stundað-
ar frá byrjun. Núna tekur vélsmiðj-
an að sér alls kyns smíðaverkefni
og einnig er unnið að pípulögnum
á okkar vegum. Upp á síðkastið
höfum við verið með nokkur stór
verkefni. T.d. sáum við alveg um
lagningu innanbæjarkerfis hita-
veitunnar hérna í fyrra og var það
klárað á 3'/2 mánuði sem þótti
ótrúlegur vinnuhraði. Núna eru
menn frá okkur að vinna við hita-
veitu í Borgarnesi, en þar njótum
við reynslu okkar héðan. Þá erum
við með nokkur stór verkefni í
pípulögnum, t.d. í Húnavallaskóla
og erum nýbúin að Ijúka viö lagnir í
fjölbýlishús hér.
Fjölbreyttur
verslunarrekstur
— Hvað verslunarrekstur okkar
snertir, sagði Arndís, — þá hófst
hann með því að farið var að selja
varahluti í bíla. Hefur reyndar alltaf
haldist hér nokkur varahlutaversl-
un þótt í smáum stíl sé nú orðiö.
Smám saman þróaðist þetta yfir í
að bæta við matvöru, fatnaði og
gjafavöru og alltaf er verið að
stækka og breyta húsnæðinu
vegna þessa reksturs. Það er búið
að byggja tvisvar við þetta hús.
Núna er vélsmiðjan komin í nýjasta
húsið, en verslunin leggur undir
sig fyrstu tvo áfangana. Uppruna-
lega vélsmiðjan er bara hluti af
húsnæðinu sem verslunin hefur
núna.
— Hér eru hlutfallslega nokkuð
margar matvöruverslanir, sagöi
Arndís, — en þetta hefur allt
í versluninni hjá Vísi á Blönduósi.
57