Frjáls verslun - 01.03.1980, Page 29
Kaupmannasamtök fslands eru
landssamtök kaupmanna og eru
félagsmenn þeirra nú um 700. Á
skrifstofu samtakanna eru fjórir
starfsmenn, auk ritstjóra Versl-
unartíðinda, málgagns samtak-
anna, sem gefin eru út fimm sinn-
um á ári.
Á þeim stöðum á landinu, sem
engin kaupmannafélög eru starf-
andi, geta einstaklingar gerst aðil-
ar að Kaupmannasamtökunum,
og erfjöldi þeirra nú um 70.
Tilgangur samtakanna er að
koma fram fyrir hönd félagsmanna
gagnvart opinberum aðilum, ann-
ast undirbúning og gerð kjara-
samninga, safna skýrslum um allt
sem lýtur að verslun og viðskiptum
í landinu og annast ýmis konar fé-
lagslegar fyrirgreiðslur fyrir fé-
lagsmenn. Auk þess beita sam-
tökin sér fyrir umbótum í versl-
unarlöggjöf og verslunarháttum.
Verðlagsmálin tíma-
frekust
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
takanna, sagði að verðlagsmálin
tækju mestan tíma á skrifstofunni,
enda sé mest lagt upp úr þeim.
Einnig kvað hann mikið starl
vera fólgið í fyrirgreiðslu fyrir
aðildarfélögin, sem mörg hver eru
utan Reykjavíkursvæðisins.
„Þetta verður til þess, að við er-
um alltaf í góðu sambandi við fé-
lagsmenn og vitum vilja þeirra í
þeim málum, sem við erum að
berjast fyrir," sagði hann.
„Við leggjum nú mikla áherslu á
að byggja samtökin upp, endur-
skipuleggja starfsemi eldri kaup-
mannafélaga og stofna ný. Þegar
því er lokið, eiga flestir kaupmenn
kost á aðild að félögum."
Hafa byggt upp eigin
sjóði
Velta Kaupmannasamtakanna
var á síðasta ári 50 miljónir króna.
Meginhlutinn var fenginn með fé-
lagsgjöldum, enda hafa samtökin
litlar sem engar aðrar tekjur.
Innan Kaupmannasamtakanna
eru starfandi fjórir stofnlánasjóðir,
sem kaupmenn hafa sjálfir byggt
upp að öllu leyti. Þrír sjóðanna eru
sérgreindir eftir verslunargreinum,
en sá fjórði er almennur stofn-
lánasjóður samtakanna.
„Tollkrít og verðlagsmál
eru helstu baráttumálin”
— segir Jónas Þór Steinarsson
framkvæmdastjóri
Félags ísl. stórkaupmanna
Félag stórkaupmanna hefur fjögurra manna starfsiið á skrifstofu
sinni, þar af tvo viðskiptafræðinga. Samhliða eigin starfsemi veitir
félagið Bílgreinasambandinu skrifstofuþjónustu.
f Félagi stórkaupmanna eru tæplega 200 félagsmenn og er starf-
semi þess mjög víðtæk. Hlutverk þess er að gæta hagsmuna heild-
sala í hvívetna og veita þeim upplýsingar um kjarasamninga, lög og
reglugerðir, sem að þessum atvinnurekstri snúa.
Að sögn Jónasar Þórs Steinarssonar framkvæmdastjóra félagsins
hefur starfsemin beinst æ meira að sérstökum hagsmunamálum
innflytjenda og heildsala og sérgreinahópar innan féiagsins hafa
haft sífellt veigameira hlutverki að gegna.
Félagið gefur reglulega út fréttabréf og félagatal er gefið út árlega.
Auk þess eru haldnir fræðslufundir og námskeið á vegum félagsins,
þar sem meðal annars eru kynntar ýmsar nýjungar, sem að gagni
mega koma, fjallað um ýmis atriði verðlags, — banka- og tollamál og
hagræðingu.
„Þau mál, sem við höfum mest barist fyrir, eru tollkrít og verð-
lagsmál," sagði Jónas. „Við erum aðilar að Kjararáði verslunarinnar
og komum þar fram sem fulltrúar heildsala í samningamálum.“
Heildarvelta félagsins var á síðasta ári rúmar 50 miljónir króna og
voru liðlega 60% þess fjármagns félagsgjöld.
29