Frjáls verslun - 01.03.1980, Page 41
ingar er að ræða eða steinsteyptar, þá gefur verk-
smiðjuframleiðslan sem slík tilefni til þess að halda
jöfnum gæðum.
Verksmiðja sem framleiðir tréeiningar kaupir inn
mikið magn af timbri í einu og getur því fengið timbur í
hærri gæðaflokki en þeir sem kaupa minna í einu.
Enda hefur sú verið reynslan með tréeiningar að þær
séu yfirleitt úr völdu og vönduðu efni og kaupendur
því getaö treyst því að húsin væru byggð úr úrvals-
efni. Margur húseigandinn er ekki dómbær á hvað sé
gott og hvað sé lélegt efni og því er það trygging í
sjálfu sér að einingaefnið er valið af fagmönnum.
Flestir tréeiningahúsaframleiðendurnir hafa á sín-
um snærum vinnuhópa sem setja húsin saman og er
þar um þrautþjálfuð starfslið að ræða og á sama hátt
trygging fyrir því að húsið sé vel byggt. Um stein-
steyptar einingar gildir nákvæmlega það sama. Fólk
getur t.d. treyst því að ekki koma fram alkalískemmdir
í þeim einingum, a.m.k. ekki eftir það sem á undan er
gengið ísambandi við hús sem steypt hafa verið uppá
gamla mátann.
Niðurstaðan er því sú, að sá sem ætlar að byggja
einlyft einbýlishús ætti fyrst og fremst að velta fyrir sér
einingahúsi vilji hann byggja traust hús fyrir hag-
kvæmt verð.
endanlegt verö á einingahúsunum af því að erfitt sé
að henda reiður á því hvað venjuleg steinhús kosta
endanlega. Fólk hefur það einfaldlega á tilfinningunni
að það sé verið að reyna að lokka það út í eitthvert
fen.
Það sem er öllu verra er sú staðreynd að þetta
háttarlag hefur fælt fólk frá því að kaupa einingahús
þar sem það hefur ekki nennt að toga endanlegt verð
upp úr seljendunum.
Að ekki sé hægt að gefa upp endanlega verðhug-
mynd plús eða mínus einhver frávik getur ekki staðist
á sama tíma og byggingarfélög selja fbúöir sem ekki
er byrjað á að byggja á föstu verði.
Eftir okkar athugunum að dæma eru einingahúsa-
framleiðendur aö hafa af sér sölu á þennan hátt þar
sem húsin eru tvímælalaust hagkvæmasti kosturinn
fyrir þann sem ætlar að koma sér upp einbýli.
Kjörin í boði
Hjá einum framleiðendanna, en sá tekur einnig að
sér að steypa undirstöður samkvæmt tilboði, fengust
þær upplýsingar að greiðslukjörin væru yfirleitt
þannig, að kaupandinn greiddi 10% af verksmiðju-
verði hússins við pöntun, 40% við afhendingu (og þá
er uppsetningin innifalin) síðan væri beðið eftir láni
frá Húsnæðismálastjórn og dæmið gert upp um leið
og það bærist.
Hvort þetta eru þau greiðslukjör sem almennt eru
boðin vitum við ekki.
Kostlr elningahúsa
Sé reiknað með því að öll einingahús séu framleidd
samkvæmt sömu gæðakröfum, hvort sem um tréein-
LÖWENBRÁU
á leiðinni heim
41