Frjáls verslun - 01.03.1980, Síða 71
‘SL'.
'vek
Feröir Herjólfs
1200 á fjórum árum
„Aukningin frá áramótum í farþegaflutningum er 25% svo að það
hlýtur áð segja sína sögu um vinsældir Herjólfs," sagði Ólafur Run-
ólfsson, framkvæmdastjóri Herjólfs.
„Herjólfur kom til landsins fyrir tæpum fjórum árum. Sögðu þá
sumir aö skipið væri allt of stórt, en það hefur sýnt sig að full þörf
hefur verið fyrir það, og á þessum tíma hefur Herjólfur farið í 1200
ferðir."
Farþegar hafa verið 144.450
Bílar 29.387 og að meðaltali 53 í ferö.
Vörumagn 32.000 tonn.
Kojunýting 48.2% að meðaltali og 40 í feró.
,,Ég erá þeirri skoðun að athuga eigi nú kaupá hentugra skipi. Nýja
skipið mætti nýtast betur til vöruflutninga og fleiri herbergi með
svefnplássi mættu vera um borð og fleira mætti nefna," sagði Ólafur.
Ferð með Herjólfi fram og til baka fyrir tvo og bíl er jafndýr og fyrir
einn í flugvél, sem að auki er miklu ótryggari fararmáti vegna veður-
lagsins í Eyjum. Það er markmiðið að halda fargjaldinu á þessum
grunni, eftir því sem Ölafur segir. Einnig eru vöruflutningagjöld með
Herjólfi 10% lægri en með skipafélögunum, og nú er svo komið, að
Eimskip er að leita eftir samningum um vöruflutninga til Vestmanna-
eyja með Herjólfi, telur það frekar borga sig en að sigla með mis-
munandi magn af vörum vikulega.
Eigendur Herjólfs eru margir en ríkið og Vestmannaeyjabær eru
þeir stærstu. Ríkisframlagið nemur nú 87 milljónum á ári og að sögn
Ólafs fer reksturinn batnandi ár frá ári.
„Stofnkostnaðurinn var auðvitað mikill," sagði Ólafur, ,,en við
höfum gott starfsfólk á landi og sjó, og umgengnin um skipiö er hreint
til fyrirmyndar. Á því hefur engin endurnýjun þurft að eiga sér staö á
naglföstum húsgögnum um borð. Það vil ég þakka hreinlæti, enda er
skipið tekið í gegn eftir hverja ferð, hátt og lágt."
Ólafur nefndi að fyrirhugað væri að kaupa myndsegulband í skipið
og tvö stór sjónvörp og sýna þar sjónvarpsþætti á ferðum þess, enda
tekurferðin þrjá og hálfan tíma.
HUS-
BYGGJENDUR
Til afgreiðslu af lager:
Niðurfalisrör
Rennubönd
Þakrennur
Þakgluggar
Þaktúður
Gaflþéttilistar /1
Kjöljárn VJ
Klipptog f
beygt járn af
ýmsum gerðum.
Öll almenn
blikksmíði.
'S
BREIÐFJÖRÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitiö nánari upplýsinga
aö Sigtúni 7 Simi:29022
LEIGA/SALA
Bráðabirðarskálarnir
eru auðveldir í uppsetningu
-léttir og bjartir-
mjög hentugir sem
Vinnu og/eða,
geymslu
húsnæði.
4
'S
BREIÐFJORÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitiö nánari upplýsinga
aó Sigtúni 7 Simi:29022
71