Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 3
t þessu tölublaði Frjálsrar verzlunar er fjallað
um sögu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Er stiklað
á stóru og fjallað um hina ýmsu þætti um störf v.R.
svo sem þann svip sem félagið setti á Reykjavikur-
lífið á árum áður með margháttuðu skemmtanahaldi,
fyrirlestrum og málfundiAm um ýmis framfaramál borgar-
búa og verzlunarstéttarinnar sérstaklega. A síðari
tímum hefur bein kjarabarátta fyrir heill og hamingju
hinna fjölmörgu er að verzlunar-og skrifstofustörfum
vinna, orðið yfirgnæfandi i viðfangsefnum V.R.
1 dag er V.R. öflugasta launþegafélag landsins og þ6
að verkefni félagsins séu að verulegu leyti kjaramál
hefur félagið beitt sér fyrir viðtæku félagsstarfi
og tekið þátt i mörgum verkefnum i tengslum og sam-
starfi við aðra aðila. Velta félagsins var á sl. ári
um 230 millj&nir gamalla krðna og eru helztu kostn-
aðarliðir i starfseminni skrifstofu-og stjórnunar-
kostnaður, eða liðlega helmingur af gjöldum, en önnur
helstu gjöld eru iðgjöld til Landssambands isl. verzl-
unarmanna.
Um leið og Magnúsi L. Sveinssyni formanni V.R. og
verzlunarfólki er 6skað til hamingju er ekki úr vegi
að minnast á þann aðila sem tekið hefur hvað mestan
þátt i m&tun félagsins undanfarna tvo áratugi, fyrr-
verandi formann þess,Guðmund H. Garðarsson.
Það er mikil ábyrgð sem hvilir á forustumanni laun-
þegafélags og mikið vald. Notkun á þvi valdi til já-
kvæðra hluta i þjóðfélaginu skiptir megin máli. Mis-
notkun á þvi valdi getur haft alvarlegar afleiðingar
og gert atvinnulifinu erfitt fyrir eins og verkföll
og skæruhernaður gegn atvinnurekstrinum. Forystumenn
V.R. hafa fyrr og siðar lcunnað að beita áhrifum sinum
á höfsaman en árangursríkan hátt. Þeir hafa jafnan
haft að leiðarljósi þau sannindi að saman fer vel-
gengni atvinnufyrirtækjanna og batnandi hagur laun-
þeganna.
3