Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Blaðsíða 17

Frjáls verslun - 01.04.1981, Blaðsíða 17
Gissur Sigurðsson tinnlent Tími litlu skipafélaganna virðist liðinn Ef litið er á markaðsaðstæður ís- lenskrar kaupskipaútgerðar kemur í Ijós að allt frá 1914 þegar Elmsklpa- félag fslands (Elmskip) varð til með 12.000 hluthafa að bakhjarli, var vart um samkeppni að ræða fyrr en Eim- sklpafélag Reykjavíkur var stofnað 1932. Það félag eignaðist tvö skip, öskju og Kötlu, en Kveldúlfur keyptl annað skipið 1942 en Eimskip hitt 1945. Þrem árum síðar keypti Eim- skipafélag Reykjavíkur enn eitt skip, en það var aðallega í siglingum er- lendis og jók ekki á samkeppni hér innanlands. Þar kom að útgerð fé- lagsins varð nátengd rekstri Eim- skips og hefur það nú nýlega hætt allri útgerð. Árið 1946 kom svo Skipadeild S(S til skjalanna, en skip deildarinnar stunduðu aðallega flutninga á heil- förmum til og frá landinu auk þess, sem þau voru oft í leigusiglingum er- lendis. Fljótlega keypti deildin þó frystiskip og varð þá um leið skæðari keppinautur Eimskips. Ári eftir stofnun Skipadeildar S(S, eða 1947, urðu Jöklar til. Hóf fyrir- tækið rekstur tveggja lítilla frysti- skipa. Upp úr 1960 varð mikil gróska í rekstri þess, sem byggðist á flutn- ingum með frosinn fisk út í stórum afkastamiklum skipum en heilfarma heim. Undir miðjan sjöunda áratug- inn tókst Eimskip að undirbjóða Jökla þannig að þeir treystu sér ekki til að mæta samkeppninni og varð það til að Eimskip yfirtók nær alla flutninga á frystum fiski. Jöklar eiga nú eitt frystiskip, Hofsjökul, sem Eimskip hefur á leigu og sér um reksturinn á. Um það bil, sem Eimskip náði til sín flutningum Jökla tóku ýmis smáfélög að skjóta upp kollinum. Þessi félög náðu sér nokkurri markaðshlutdeild, yfirleitt með því að undirbjóða Eim- skip. Er það athyglisvert að fæstir töldu ástæðu til að gera athuga- semdir við það þó svo að um sama leyti voru hafðar uppi miklarásakanir á hendur Eimskipafélagsmönnum fyrir að beita Jökla undirboðum og bolabrögðum. En hvað sem ásökunum um bola- brögð líður þá virðist sem mikil harka hafi verið farin að færast í sam- keppnina um þetta leyti og það meiri harka en menn höfðu áður upplifað. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.