Frjáls verslun - 01.04.1981, Blaðsíða 53
Lokunar-
tími
sölu-
búða
Merk verzlun í Reykjavík, Haraldur Árnason í Austur-
strœti.
Á félagsfundi í janúar 1937 var af
hálfu þáverandi formanns, Egils
Guttormssonar, vakið máls á, að
athuga þyrfti umbætur á lokunar-
tímasölubúða.
Þetta málefni hafði við og við
skotið upp höfðinu allt frá því að
Þorlákur Ó. Johnson kaupmaður
vakti máls á því á félagsfundi 16.
maí 1891, eða á fyrsta ári félagsins.
Þorlákur var eins og kunnugt er
um margt á undan sínum tíma og
skoraði hann á kaupmenn og
verzlunarstjóra í Reykjavík að sjá
svo um að búðum „verði lokað kl. 8
að kvöldi, því það sé ekki hægt að
ætlast til að verzlunarmenn æfi
róður eða annað eftir að hafa stað-
ið í búðum við vinnu sína frá því kl.
6á morgnatil kl. 9-10ákvöldin."
Árið 1937 var síðan kosin nefnd
manna til að gera tillögur um lag-
færingar á lokunartímanum og
náðist samkomulag um breyting-
ar. Aðalatriði hinna nýju reglna,
sem staðfestar voru af atvinnu-
málaráðherra 21. maí 1937, var að
lokað skuli ætíð kl. 6 e. h., nema á
föstudögum kl. 8, og að yfir sumar-
tímann skuli lokað kl. 1 e. h. alla
laugardaga. Þær breytingar, sem
gerðar voru, höfðu í för með sér að
vinnutími verzlunarmanna styttist
um 262 klst. á ári. - Reynslan
sýndi hins vegar fljótlega, að
„föstudagurinn langi“ varóþarfur.
Menn höfðu yfirleitt vanizt því að
Ijúka kaupum sínum fyrir kl. 7 á
kvöldin. V. R. skrifaði því Verzlun-
arráði íslands í marz 1939 og fór
þess á leit að stjórnir þeirra kaup-
mannafélaga, sem hér ættu hlut
að máli, ásamt stjórn V. R. væru
boðaðar á fund, til þess að ræða
þetta mál. Héldu stjórnirnar tvo
fundi og komu sérsaman um að fá
reglugerðinni breytt þannig, að
lokað væri alla virka daga yfir vetr-
armánuðina kl. 6 e. h., og fékkst
því framgengt.
Verzlanir í Reykjavík
Tala verzlana hefir verið í Reykjavík, á þeim árum,
sem að neðan greinir:
1912 15 heildverzlanir
1920 35 heildverzlanir
1930 64 heildverzlanir
1939 70 heildverzlanir
145 smáverzlanir
235 smáverzlanir
407 smáverzlanir
543 smáverzlanir
Hlutdeild Reykjavíkur í verzlun landsins.
Hlutdeild Reykjavlkur í verzlun landsins hefir verið
sem hér segir á þeim árum, sem tilfærð að neðan (tölurnareru hundraðshlutar): Innfl. Útfl. Alls
1900 26,4 19,7 23,0
1910 34,8 25,5 29,9
1915 48,0 24,1 33,6
1920 75,8 52,6 66,0
1925 58,3 44,1 53,5
1930 61,0 51,0 56,5
1935 66,4 65,0 65,7
1939 61,9 53,7 57,7
53