Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.04.1981, Blaðsíða 25
Daimler-Benz fór hinsvegar þá leið að svelta markaðinn, það er að segja framleiðslunni var haldið 2—3 prósentum undir því sem hægt var að selja. Þetta hafði í för með sér að það myndaðist allt að eins árs biðlisti eftir Mercedes Benz bílum og þeir voru greiddir kontant og upp í topp. Jafnframt hefur alltaf verið lögð áhersla á Mercedes Bens sem stöðutákn og þeir sem kaupa bíla af þeirri tegund verða ekki fyrir eins miklum áhrifum, þegar harðnar í ári, og þeir sem verða að láta sér nægja ódýrari farkosti. Þessi stefna hefur leitt til þess að Daimler-Benz verksmiðjurnar eru nánast óháðar efnahagssveiflum. Þær hafa haldið í við sig þegar sveiflan hefur verió uppávið og þvi ekki setið uppi meö miklar fjár- festingar sem allt í einu eru orðnar óarðbærar, þegar ástandið hefur versnað. Þær hafa því getað haldið áfram hægri en stöðugri aukningu nú síðustu árin, meðan aðrir bifreiða- framleiðendur í Evrópu hafa þurft að draga saman um 11,5 prósent. Ef við tökum til dæmis heima- land Mercedes Benz, Vestur-Þýskaland, þá minnkaði heildarframleiðslan þar um tíu prósent á síðasta ári. Hjá Daimler- Benz varð hinsvegar 1,6% aukn- ing. Markaðshlutfallið batnaði um 1%, upp í 10%, sem er enn at- hyglisverðara þegar það er haft í huga að Mercedes Benz eru stórir og orkufrekir bílar og allir aðrir leggja áherslu á sparneytni og hóflega stærð. Lítill Benz Daimler-Benz gerir sér hinsveg- ar fulla grein fyrir að markaður fyrir litla, sparneytna bíla er miklu stærri en fyrir stóra og eldsneytis- freka. Þessvegna er byrjað að hanna lítinn bíl sem á að koma á markaðinn árið 1983. Það fór hrollur um aðra framleiðendur í Evrópu þegar þær fréttir bárust að von væri á smábíl frá Benz. Bæði keppinautar og bílablöð vítt og breitt um heiminn hafa haft allar klær úti til að fá frekari upplýsing- ar, en án árangurs. Það á enginn að fá að vita neitt um nýja bílinn fyrr en verksmiðjurnar eru tilbúnar að setja hann á markaðinn. Auðvitað hafa allskonar spá- menn komið með allskonar get- gátur um hvernig bíll þetta verður og þær fara dálítið í taugarnar á Helmut Schmidt, markaðsstjóra Daimler-Benz. ,,Þetta verður engin miniútgáfa af Mercedes Benz. Þetta verður alveg nýr bíll, lítill og sparneytinn. En þótt hann verði lítill og spar- neytinn verður hann snöggur og hraðskreiður og mjög vandaður °9 þsegilegur. Hann verður tölu- vert léttari en bílar af sömu stærð því við smíðina verður notað mikið af áli og hörðum fíberefnum. Þetta verður ekkert sérstaklega ódýr bíll." Það eru aðstæður á bílamark- aðinum í Bandaríkjunum sem er helsta ástæðan fyrir að lagt er út í þá gífurlegu fjárfestingu sem það er að hanna og hleypa af stokk- unum nýrri tegund. Bandaríkjamarkaðurinn hefur undanfarin ár gleypt fjórðung af útflutningi Daimler-Benz verk- smiðjanna og tveir af hverjum þremur bílum hafa verið með dieselvélum. Nú hafa yfirvöld í Bandaríkjunum sett mjög strangar reglur um eldsneytiseyðslu og mengun. Hvað eldsneytiseyðslu snertir eru dieselbílarnir frá Benz á grænni grein. En um mengunina gildir öðru máli; dieselbílar eru af- skaplega „óhreinir". Það eru litlar líkur til að banda- rísk yfirvöld slaki á þessum reglum sínum og til að mæta því verður Daimler-Benz að koma sér upp sparneytnum bíl með bensín- mótor. Hörð markaðspólitík Gerhard Prinz er talinn eins og sérhannaður fyrir þarfir Daimler- Benz verksmiðjanna, eins og að- stæður eru þar í dag. Fyrirtækið stækkaði gríðarlega undir stjórn Joachims Zahn og er nú orðið svo mikið um sig að það er ekki á færi eins manns að hafa yfirlit yfir allt og vera með „puttana í öllu“, eins og eldibrandurinn Zahn vildi. Gerhard Prinz kom til Daimler- Benz árið 1974, frá Volkswagen— verksmiðjunum þar sem hann heföi setið í æðstu stjórn. Hann fékk auðvitað strax toppstöðu hjá Daimler-Benz, sem innkaupa- stjóri, en það voru samt fáir sem reiknuðu með að hann myndi skjóta markaðs- og fjármálastjór- unum ref fyrir rass þegar að því kæmi að finna eftirmann Zahns. En þótt ólíkir séu kom Prinz og Zahn mjög vel saman og þá var greið leið upp á toppinn. Eitt eiga þeir félagar sameigin- legt og það er hörð markaðspóli- tík. Sem dæmi um það má nefna framleiðslu Daimler-Benz á flutn- ingabílum og strætisvögnum. Ekki alls fyrir löngu keyptu verksmiðj- urnar bandaríska flutningafyrir- tækið ,,Freightliner“, fyrir hátt á annan milljarð króna. Með því náði Daimler-Benz tíu prósent af mark- aðinum fyrir þunga flutningabíla þar í landi. Það er að vísu veikur markaður eins og er, en sérfræð- ingar spá miklum uppgangi á þessum áratug. Og með þessum kaupum sló Daimler-Benz tvær flugur í einu höggi. Volvoverksmiðjurnar höfðu nefnilega, fyrir tveim árum, gert samning við Freightliners um einkaumboð fyrir Volvo flutninga- bíla í Bandaríkjunum. 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.