Frjáls verslun - 01.04.1981, Qupperneq 8
I FRETTUNUM=
Reimar Charlesson verður framkvæmdastjóri Víflis
Reimar Charlesson, sem
ráðinn varframkvæmdastjóri
hjá skipasmíðastöðinni
Bátalón hf. og hóf störf þar
um miðjan desember 1980,
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Trésmiðjunn-
ar Víðis hf. frá 1. maí.
Reimar vann áður lengst
af hjá Sambandinu, og var
starfsaldur hans þar orðinn
25 ár er hann hætti 15. des.
1980. Á þess vegum var
hann m.a. í þrjú ár í Banda-
ríkjunum þar sem hann rak
lceland Food Terminal Inc.,
og í 18 ár var hann deildar-
stjóri búsáhalda-, sport-
vöru- og járnvörudeildar
Sambandsins. En fyrsta
starf Reimars eftir að hann
útskrifaðist úr framhalds-
deild Samvinnuskólans árió
1954 var í Vestmannaeyjum.
Þar var hann í þrjú ár og
gegndi starfi bæjargjald-
kera og skrifstofustjóra
Arndís Björnsdóttir, kaup-
maður í Rosenthalverslun-
inni var nýlega kosin í
framkvæmdastjórn Kaup-
mannasamtaka íslands. Nú
hefur Arndís gefið í skyn að
hún muni bjóða sig fram til
formennsku í þeim samtök-
um, þegar Gunnar Snorra-
son dregur sig í hlé. Hefur
Gunnar verið formaður í um
tíu ára skeið.
Arndís hefur talsvert látið
bæjarskrifstofanna. Reimar
er austfirðingur — fæddur á
Eskifirði 22. jan. 1935.
Ástæðuna fyrir hinum
snöggu skiptum nú segir
Reimar vera „freistandi til-
boð" frá Víði.,,(fyrsta lagi er
þetta verulega stærra fyrir-
sig málefni verslunarinnar
skipta, meðal annars með
skrifum í blöð, og yfirleitt er
hún ómyrk í máli. Nýlega
lagði hún til á fundi á Suð-
urnesjum að ríkisvaldið yrði
þvingað til að greiða kaup-
mönnum laun fyrir inn-
heimtu á söluskatti. Ríkið
fengi nefnilega 40% af sín-
um tekjum án þess að þurfa
að greiða eyri í innheimtu-
laun.
tæki en Bátalón, og í öðru
lagi byggist starfsemin á
framboði og eftirspurn á
innlendum og erlendum
markaði, og þetta eru við-
skiptahættir sem ég hef
vanist alla tíð og er kunnug-
astur."
Engu að síður kveðst
Reimar sakna þess að fara
frá Bátalóni hf.: „Viðskiptin
þar hafa veripð ákaflega líf-
leg og samskiptin við út-
gerðarmenn og skipasmiði í
stöðinni hafa verið sérlega
ánægjuleg. Ég hef nú
reyndar ekki alfarið sagt
skilið við Bátalón hf. þar
sem stjórnin færði mér að
skilnaði höfðinglega gjöf
sem voru hlutabréf í fyrir-
tækinu, og hefur hún óskað
eftir því að ég verði ráðgef-
andi í fyrirtækinu og standi
fyrir vikulegum fundum með
stjórn þess og fram-
kvæmdastjóra."
Lokaorð Reimars eru um
fyrirtækið sem hann hefur
nú hafið störf hjá: „Hjá Víði
hf. standa fyrir dyrum gagn-
gerar breytingar. Þar hafa
sænskir sérfræðingar í hús-
gagnaiðnaði kannað rekstur
fyrirtækisins og framleiðslu,
og hugmyndin er að breyta
rekstrinum í samræmi við
tillögur þeirra í því skyni að
mæta þörfum nútímans.
Fyrirtækið Hefur nýlega flutt
í nýtt 7.000 ferm. húsnæði á
fyrstu hæð að Skemmuvegi
3 í Kópavogi — auk skrif-
stofu á annari hæð.
Arndís stefnir aðformennsku í KÍ
Ur Bílaborg
í Istraktor
Páll Gíslason, véltækni-
fræðingur og sölustjóri
véladeildar Bílaborgar, er á
förum þaðan um næstu
mánaðamót til fyrirtækisins
Istraktors hf, að Höfðabakka
9. Það fyrirtæki hefur séð
um viðhald fyrir Dráttarvélar
hf. Hefur Páll nú keypt þriðj-
ung hlutafjár og tekur við
framkvæmdastjórn.
„Það er ýmislegt á döfinni
þegar ég kem þangað, en
það er of snemmt að tíunda
það nú" segir Páll. Hann er
menntaður í Tækniskóla ls-
lands og í tækniskóla í
Árósum. Eftir að hann út-
skrifaðist gerðist hann
tæknilegur framkvæmda-
stjóri verktakastarfsemi Vél-
smiðjunnar Norma í Garða-
bæ. Einnig vann hann fyrir
Svartolíunefnd. Er Bílaborg
hóf innflutning Komatsu
vinnuvélanna og stofnaði
véladeildina, gerðist hann
sölustjóri deildarinnar. Þar
vann hann einnig að ýmsum
hönnunarverkefnum svo
sem við gerð Hino vörubfl-
anna og lyftibúnaðar á lyft-
ara, er gerir vörubretti óþörf
við landanir á kassafiski.
Albert aðsópsmikill í Útvegsbankanum
Starfsfólk Útvegsbankans
bindur miklar vonir Albert
Guðmundsson, alþingis-
mann, sem nú hefur tekið
við stöðu bankaráðsfor-
manns. Dapurleg afkoma
bankans hefur óneitanlega
sett mark sitt á starfsandann
en nú gætir aukinnar bjart-
sýni eftir að Albert kom til
starfa enda aðsópsmikill.
Hann hefur þegar haldið
fundi með yfirmönnum
bankans og skýrt viðhorf sín
til enduruppbyggingar hans
og ennfremur beitt sér í
málum einstakra starfs-
manna, sem beðið hafa úr-
lausnar hjá forráðamönnum
bankans.
Bankaráðið undir forystu
Alberts mun hafa hug á að
hefja kynningarstarfsemi til
að afla bankanum nýrra við-
skiptamanna og fleira er í
bígerð. Það er hins vegar
sameiginlegt vandamál
bankaráða ríkisbankanna,
að verksvið þeirra er ekki
mjög fastmótað í lögum og
raunverulega vilja sumir
túlka laganna hljóóan á þá
lund að áhrif bankaráðanna
og myndugleiki sé næsta
lítill. Þetta hafa sumir
bankastjórar notað sér
óspart í sambúðinni við
bankaráðin á liðnum árum.
Það mun ráðagerð þeirra
Alberts Guðmundssonar og
Lúðvíks Jósefssonar, sem
nú er formaður bankaráðs
Landsbankans, að beita sér
fyrir því að Alþingi endur-
skoði lögin um bankaráð og
geri valdsvið þeirra mun
víðtækara og ákveðnara en
nú er.
8