Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 43
Verzlun í Reykjavík á miðri 19. öldinni.
ýkja stór — nemendurnir eitthvaö á milli 20 og 30.
Aðeins einn íslendingur var á skólanum auk mín, og
var það Árni Riis, en hann var bókhaldari við Tang-
verzlun á ísafirði að mig minnir. Kennararnir voru
ágætir, og fannst mér ég taka miklum framförum í
reikningi og bókhaldi þennan tíma, sem ég var ytra.
Meðan ég var í Höfn skrifaðist ég á við Knud Zimsen,
son Chr. Zimsen, en við vorum miklir kunningjar. —
Heim til íslands kom ég um vorið 1887 og hafði þá
verið 37 daga á leiðinni frá Höfn. Tók ég mér far með
einu af skipum Knudtzonsverzlunarinnar, sem hét
„Annette Mathilde." Það skip fórst ári síðar á leið til
Hafnar. Verslunin átti annars 4 skip, sem höfð voru í
förum á milli Danmerkur og íslands.
Þá var sungiö og dansað
- Er ekki eitthvað, sem þér getið sagt okkur i sam-
bandi við stofnun Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
og starfsemi þess fyrst framan af?-
Við vorum tveir úr Hafnarfirði sem fórum á stofn-
fundinn í Reykjavík, Gunnlaugur Briem, verzlunar-
stjóri og ég. Unnum við báðir hjá P. C. Knudtzon &
Sön. Fórum við ríðandi í bæinn, en í þá tíð átti ég
ágætis hest, sem kom sér vel, þegar maður þurfti að
skreppa á milli. Stofnfundurinn var fjörugur eins og
flestir fundir þá til dags. Við Hafnfirðingarnir gátum
ekki komið því við að sækja alla fundi hjá félaginu, en
fórum þó nokkuð oft, bæði á almenna fundi og eins
böllin, sem voru mjög vinsæl og menn sóttust mikið
eftir að komast á. Ég hafðigaman af því að dansa og
dansaði yfirleitt alla þá dansa, sem voru í móð. Fjör
var þá mikið og skemmtu menn sér vel, jafnt á fund-
um sem böllum. Söngmenn góðir voru í félaginu,
léttir og kátir, enda oft tekið lagið öllum til mikillar
ánægju. Þá var líka mikið um dýrðir á frídegi verzlunar-
manna, 2. ágúst. Það var venja framan af að safnast
saman við Lækjartorg og halda svo fylktu liði, bæði
gangandi og ríðandi, inn í Ártúnsbrekku með lúðra-
þeytara í fararbroddi. Þar skemmtu menn sér við
ræðuhöld, leiki, söng og músik. Var jafnan mikil þátt-
taka í þessum hátíðarhöldum. Svo voru líka skemmt-
anir haldnar á Landakotstúninu. Þar var reistur stór
danspallur, sem skreyttur var lyngi, og svo dönsuðu
menn af miklu fjöri fram á morgun. Um helgar efndi
Verzlunarmannafélagið stundum til útreiðatúra, og
var þá farið upp í Mosfellssveit, upp undir Esju og hér
í nágrennið. Ég hafði yndi af góðum hestum, átti
sjálfur gæða hross og tók oft þátt í útreiðatúrum
félagsins.
43