Frjáls verslun - 01.04.1981, Síða 46
Hraði___________
og góð__________
meðferð
— eru helstu kostir við
flugfrakt, segir Garðar Sig-
geirsson eigandi Herra-
garðsins.
Tískuvörur þurfa auðvitað að
komast á markað áður en þær
fara úr tísku. Þetta á ekki síst við
unt fatnað enda nota tískuversl-
anir flugfraktina töluvert mikið.
Ein þeirra verslana er Herra-
garðurinn í Aðalstæti.
„Við fáum talsvert af vörum í
flugfrakt,“ segir Garðar Siggeirs-
son, eigandi Herragarðsins. „Það
er auðvitað matsatriði hverju
sinni hvort á að nota flugið eða
fara sjóleiðina, því farmgjöld
með skipum eru lægri en með
flugvélum.
En þegar um er að ræða ein-
hver forgangsverkefni kemur
ekki annað til greina en flugið. Þá
fær maður vöruna í hvelli. Fyrir
mig eru kostirnir við flugfrakt
þeir að varan kemur fljótt og með
skilum og meðferðin á henni er
mjög góð. Það þarf ekki að óttast
að hún skemmist, eins og virðist
alloft geta hent þegar flutt er með
skipum.
Ég hef ekkert nema gott að
segja um samskipti mín við
Flugfrakt. Samstarfið hefur verið
með ágætum og þeir hafa reynst
mér vel í alla staði.“
Líf í flugi
Tískublaðið Líf hefur verið
prentað í Bandaríkjunum um
tveggja ára skeið og allan þann
tíma hefur blaðið verið flutt
hingað til lands í flugfrakt.
„Þegar við fluttum prentun
blaðsins til Bandaríkjanna at-
huguðum við alla möguleika á
hvernig best væri og hagkvæmast
að flytja það til landsins. Og
þegar allt kom til alls var flug-
fraktin hagkvæmust“, sagði
Jóhann Briem, forstjóri Frjáls
framtaks hf.
Þessir flutningar á Lífi hófust í
lok ársins 1978 og síðan hefur
það verið flutt flugleiðis til les-
enda hérlendis, á tveggja mánaða
fresti.
„Prentun blaðsins tekur mjög
skamman tíma í Bandaríkjun-
um“, sagði Jóhann. „Og frá því
prentun lýkur líða oft ekki nema
tveir sólarhringar þar til það er
komið á markað í Reykjavík.
Upplagið vegur ein fjögur tonn
og þótt flutningskostnaður sé
fremur hár þá fylgja hraðanum
það miklirkostiraðfyrirokkurer
þetta lang hagkvæmasta leið-
in“.
Mikill
Það eru mismunandi stórir
hlutir sem menn þurfa að fá
flutta, í skyndi, á milli landa. Það
getur verið allt frá skókassastærð
og upp í meira en mannhæðar-
háa kassa. Og þessir hlutir eru
auðvitað mismunandi þungir.
Sembeturferermikillsveigjan-
46