Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 54

Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 54
EinarÁsmundsson, ritstjóri, rekur þætti í starfi félagsins á fjórða áratugnum Verzlunarhöftum skellt á — atvinnuleysi í stéttinni Einar Asmundsson, fyrsti ritstjóri Frjálsrar verzlunar. (Úr teiknimyndasafni V. R.) Eftir 1930 fór að ýmsu leyti að þrengjast hagur verzlunarmann- anna. Höftunum var skellt á og fjöldi verzlunarmanna missti at- vinnu sína. Stjórnarvöldin fóru sínu fram hvað sem verzlunar- menn sögðu. Árum saman hafði stétt þeirra verið hraknefnd sníkjudýr á þjóðarlíkamanum. Þeir sem lengst gengu í því að rangfæra málstað verzlunar- manna áttu hægan leik. Um aldir hafði íslenzkum almenningi verið kalt til hinna erlendu kaupmanna, sem sátu í Kaupmannahöfn og létu ,,faktora“ sína hirða verzlun- artekjurnar. Óbeitin á kaupmönn- unum hófst með einokunarverzl- uninni. Síðan óx innlend verzlunarstétt í landinu. Hún tók að ryðja hinum erlendu kaupmönnum burt, þegar verzlunin var gefin frjáls. Þessi unga stétt varð að berjast við skuggann af hinni fornu óvild, sem var ekki auðupprætt. Seinasta erlenda verzlunin á ís- landi leið ekki undir lok fyr en eftir 1930, en löngu áður var herferð innlendra áróðursmanna gegn ís- lenzku kaupmönnunum hafin og þeir, sem að áróðrinum stóðu, grugguðu aftur upp í hinu gamla djúpi óvildar til erlendra kaup- manna. Annað var það einnig, sem gerði andstæðingum verzlunarmanna hægt um vik. Verzlunarmenn vörðu sig nærekki. Þegar höftin skullu á var afstaða verzlunarstéttarinnar hin óhæg- asta á marga lund. En örðugleik- arnir urðu til þess að þjappa þeim saman og kom það m. a. fram í aukinni starfsemi innan Verzlun- armannafélags Reykjavíkur og skal það nú nokkuð rakið. Á fyrstu árunum eftir 1930 var mikið rætt í félaginu um höftin. Þar voru fyrirlestrar haldnir um þetta efni og ályktanir gerðar. Mörgum verzlunarmanninum var eðlilega ærið þungt í huga yfir órétti, er hann taldi beitt. Einum þeirra fór- ust svo orð, að „ríkið væri nú að sliga þjóðina" og var í því nokkur sannleikurfalinn. I árslok 1931 voru aðeins 297 fé- lagar í V. R. og fækkaði þeim eftir það. Félagið hafði farið sér hægt og starfsemin var nær eingöngu miðuð við umræðufundi og skemmtanir einstöku sinnum. En nú fóru að heyrast óánægjuraddir. Menn spurðu: Er ekki þörf á sterk- ari samtökum á yfirstandandi öng- þveitistímum? Því eru ekki fleiri fé- lagar í V. R.? Þessar raddir urðu æ háværari og sem dæmi má nefna að á fundi í marz 1934 flutti Kristján G. Gíslason erindi um hagsmunamál verzlunarstéttar- innar og hvatti til meiri átaka á skorinorðan hátt. Þessi hreyfing óx og brátt tóku verzlunarmenn að streyma inn í félagið. Á einum fundi í nóvember 1934 gengu 27 verzlunarmenn í félagið og skömmu þar á eftir 10. En í árslok voru þó félagar ekki nema 289. Árið eftir voru félagar orðnir 346. í lok 1940 voru í félaginu 630 manns og sýnir það, hve félagið hefir eflzt mikið á tiltölulega stutt- um tíma. 54

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.