Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 57
Vonarstræti 4, þar sem áður var félagsheimili V. R.
Félagsheimili V.R.
Eftir aö nauðsynlegar breytingar höfðu farið fram á
efstu hæð húseignarinnar Vonarstræti 4, var hinn 2.
október 1940 opnað þar „Félagheimili V. R.“. Er
þar veitinga- og fundarsalur, sem tekur um 100
manns, lesstofa, spilaherbergi, fundarherbergi fyrir
stjórn og nefndir, snyrtiherbergi fyrir karla og konur,
og eldhús. Hafa öll herbergin verið búin mjög snotr-
um og þægilegum húsgögnum, svo að þar er nú gott
að koma. — Á síðasta ári voru keypt húsgögn og áhöld
til Félagsheimilisins fyrir 15-16 þúsund krónur, en til
þess að mæta þeim kostnaði, var höfð all nýstárleg
fjársöfnunar-aðferð. Útbúin var bók í gylltum sniðum,
hinn mesti kjörgripur, enda mun bókin geymast með-
an félagið lifir, bæði vegna útlitsins og innihaldsins.
Bókin nefnist „Gullskinna", og í hana hafa margir
velunnarar félagsins, bæði einstaklingar og fyrirtæki,
skrifað sig fyrir álitlegum fjárhæðum, til styrktar
Félagsheimilinu. Við síðasta aðalfund, sem haldinn
var í lok nóvember s.l., höfðu á þennan hátt safnazt
rúmar 10 þúsund krónur. í raun og veru er þetta
viðbót við Húsbyggingarsjóðinn, en þar sem heimilið
er rekið fyrir reikning félagsins, og hefir alveg sjálf-
stætt bókhald, þótti réttara, að Félagsheimilið fengi
þetta fé, sem nokkurs konarstofnsjóð.
Hingað til hefir veitingasalurinn verið hafður opinn
frá kl. 3 til 11 1/2, og þaraðeinsseldar léttarveitingar,
en ekki matur. Er verð á þessum veitingum mun ódýr-
ara en annars staðar gerist. Starfa þar að staðaldri
fjórar stúlkur, og sjá þær um allan reksturinn, ræst-
ingu, þvotta og bakstur, því ekki má gleyma hinu
Ijúffenga og góða „brauði dagsins", sem allt er bakað
heima. Fyrsta forstöðukona heimilisins er ungfr.
Ragnheiður Bjarnadóttir frá Húsavík, en yfirstjórn
heimilisins er í höndum sérstakrar veitingarnefndar.
„Félagsheimilið“ hefir mætt miklum vinsældum,
og vegna þess hafa félaginu bætzt margir nýir með-
limir, enda er það líklega mesta hnoss, sem V.R. hefir
eignazt til þessa. - Aðsóknin hefir líka verið sæmi-
lega góð, og núna eftir jólin voru haldnar þar jólatrés-
skemmtanir fyrir börn félagsmanna, sex kveld í röð,
um 85 börn í hvert skipti. Kom sér vel að hafa ráð á
þessu húsnæði, því vegna „ástandsins" hefði félagið
annars orðið að fella allar jólatrésskemmtanir niður
að þessu sinni.
Reynsla sú, sem fengizt hefir af „heimilinu" hefir
sýnt, að húsnæðið, sem það hefir, er nægjanlega
stórt til þess að fullnægja daglegum þörfum. Fyrir
stærri samkomur eða samkvæmi þarf félagið að
leigja húsnæði, en ef til vill verður hægt að bæta úr
þessu þarna í sama húsinu, með því að byggja eina
hæð ofan á, og útbúa þar stóran samkomusal. Er
þetta eitt af þeim málum, sem framtíðin verður að
leysa úr.
57