Frjáls verslun - 01.04.1981, Blaðsíða 86
okkar vísu, framleiða einbýlishús
úr timbri, ösp h.f. og Trésmiðja
Stykkishólms h.f. Báðar hafa
framleitt fyrir markaðinn heima
fyrir nær eingöngu til þessa. Það
er ýmislegt sem gerir það fýsilegt
að byggja úti á landi, t.d. er lóða-
verðið í Stykkishólmi aðeins um
20.000 krónur í staö þess að lóð á
Reykjavíkursvæðinu getur kostaö
meira en fimmfalda þá upphæð. í
rauninni er óvarlegt aö nefna
neinar krónutölur í sambandi viö
húsbyggingar í dag og skal það
látið ógert. Hinsvegar má fullyrða
að fremur litlar blokkaríbúðir í
Reykjavík duga langt í byggingu
einbýlishúss í Hólminum!
Á Hellissandi og á Rifi hafa bát-
ar sótt á miðin í svo til hvaða veðri
sem er, fiskað vel en þurft að
sækja langt. Hér er það fiskurlnn
sem er aflgjafi alls lífs. Um hann
snýst lífsbaráttan. Það er miklð að
gera hjá Sigurðl Ágústssynl,
Hraðfrystihúsi Hellissands og hjá
Þorgeiri Árnasyni á Rifl og raunar
fleirum sem verka hér fisk. Og
þetta er ekkert segir fólklö,
páskahrotan hlýtur að vera eftir.
Meðan hrotan varir dofnar yfir
viðskiptunum í verslunum þorps-
ins, t.d. hjá honum Ólafi Magnús-
syni í útibúi Kaupfélags Borgfirð-
inga, eða hjá honum Gísla Ketils-
syni í Söluskálanum, sem leyst
hefur margan vandann fyrir ferða-
fólkið.
Og hér er að finna eitt merki
menningarinnar. Nýlega var
stofnuð hér tískuverslun, Inga,
sem verslar með vörur frá Karna-
bæ h.f. Á Rifi er að finna tvær
í Stykkishólmi er annað öflugt
iðnfyrirtæki, Skipasmíðastöðin
Skipavík með um 50 manns í at-
vinnu.
Mikil framför hefur orðið í mat-
vörudreifingu á staðnum eftir að
Vöruhúsið Hólmkjör h.f. var opn-
að, nútímaleg verslun með ágætu
vöruúrvali, og hin ákjósanlegasta
samkeppni við Kaupfélag Stykk-
ishólms. Athygli margra vekur að
hér er að finna JL-Húsið með mik-
ið úrval húsgagna. ( Bensín- og
olíustöðinni sem selur fyrir öll þrjú
olíufélögin er ágætur greiðasölu-
staður fyrir þá sem eru að flýta sér
og úrval gott af hverskonar vörum
sem ferðamenn kann að vanhaga
um.
Á leið út úr Stykkishólmi yfir
Kerlingaskarð stendur skilti,
GLEYMDIR ÞÚ ENGU? Góð hug-
mynd þetta hjá ferðamálamönnum
vestra. Á leiðinni datt mér nú í hug
að vegamálayfirvöld hefðu gleymt
einhverju, til dæmis að huga að
vegum á Snæfellsnesi almennt.
Fiskvinnslufyrirtækin í Hólminum
nota vegi að norðanverðu mikið
fyrir fiskflutninga frá Rifi og vilja
vegir því spænast upp, sumar,
vetur, vor og haust. Ofan á það
bætist að svo virðist sem vegafé sé
af mjög skornum skammti á nesinu
öllu.
ágætar verslanir, Rifskjör og Bað-
stofuna, en þangað munu ferða-
menn ekki hvað síst sækja í sumar.
Á Hellissandi er helsta fram-
kvæmdin um þessar mundir að
Ijúka við smíði grunnskólabygg-
ingar þannig að taka megi hana í
notkun í haust. Mun þá losna um
félagsheimiliö, sem hefur verið
meira og minna undirlagt af
skólahaldi.
Neshreppur utan Ennis:
SÓTT Á MIÐIN
í HVERNIG
VEÐRISEM ER
Gtsll Kstilsson f Söluskálanum.
86