Frjáls verslun - 01.09.1985, Síða 5
!
frjáls
verz/un
INNLENT
BÓKSALA nær hámarki fyrir hver jól hér á landi. Frjáls
verzlun kynnti sérhvernig málum er háttaö i bókautgáfu um
þessar mundir. Þar kemur m.a. fram aö heildarfjöldi titla aö
þessu sinni verður væntanlega á bilinu 320—350, en mat
manna er aö markaðurinn þoli um 300 titla. Heildarbóksala
yfir áriö nemur um 500 milljónum króna.
LYFJAFRAMLEIÐSLA hefur á liðnum árum færst meira inn i
landið, en fyrr á árum mátti heita, aö öll lyf, sem hér voru
seld væru flutt inn erlendis frá. I dag nemur innlend fram-
leiðsla allt aö fimmtungi notkunar árlega.
ULLARIÐNAÐURINN hefur veriö talsvert til umræöu aö
undanförnu meö sérstöku tilliti til þeirra blika, sem veriö
hafa á lofti um afkomuna um þessar mundir. Frjáls verzlun
fjallar stuttlega um stöðuna.
ISFILM er eitt þeirra fyrirtækja, sem hyggja á rekstur út-
varps- og sjónvarpsstöövar þegar á næsta ári, þegar ný lög
um útvarps- og sjónvarpsrekstur taka gildi, en þaö er 1.
janúar nk. Isfilm hefur þegar fjárfest i búnaöi fyrir 20 — 25
milljónir króna. Frjáls verzlun ræddi viö Hjörleif B. Kvaran
framkvæmdastjóra isfilm aö þessu tilefni.
GREINAR OG VIÐTÖL
SAMTIÐARMAÐUR Frjálsrar verzlunar aö þessu sinni er
Garðar Siggeirsson eigandi Herragarösins, sem hefur sér-
hæft sig I innflutningi og sölu á vönduðum herrafatnaöi. I
samtalinu viö Garðar kemur m.a. aö staðan sé mjög traust
um þessar mundir og hann reiknar meö mikilli aukningu á
veltu áárinu.
PRENTMYNDASTOFAN er dæmi um fyrirtæki, sem hefur
fylgst vel meö tækniþróuninni, en fyrirtækiö er eitt hiö
fremsta i sinni röö á Islandi, þ.e. i prentvinnslu ýmiss konar,
þótt þaö sé þekktast fyrir litgreiningavinnu sina og skeyt-
ingu. Frjáls verzlun heimsótti fyrirtækiö, þegar þaö flutti í
nýtt húsnæöi á dögunum.
FASTIR LIÐIR
— Leiöari
— Fréttir
— Hagtölur
— Bréf frá útgefanda
5