Frjáls verslun - 01.09.1985, Blaðsíða 17
_____TÆKNINÝJUNGAR_____
Skrifstofuválar kynna
nýja Ijósritunarvél
Skrifstofuvélar hf. kynntu ný-
verið nýjar gerðir af ljósritunar-
vélurn U-Bix. Mátti þar sjá vélar
fyrir smærri fyrirtæki sem stærri
og möguleikar á notkun voru
margvíslegir.
U-Bix 120 er lítil vél sem býður
upp á nýjar leiðir. Hún er það lítil
og létt að auðvelt er að hafa hana
alltaf í seilingarfjarlægð. Sjálf-
stæðar einingar innri gerðar
U-Bix 120 gera eigendum þeirra
kleift að annast sjálfir viðhald vél-
anna. Það að bæta við pappír eða
dufti er eins auðvelt og að skipta
um borða í ritvél og vélin gefur
merki með góðum fyrirvara ef
þarf að panta í hana myndtromlu
eða duft. U-Bix er þurrduftsvé! og
ljósritar því á allan venjulegan
pappír, glærur og einnig á bréfs-
efni með haus og skilar einstak-
lega góðum ljósritum með
grennstu línum. Þessi tegund
hentar vel fyrirtækjum nteð litla
ljósritunarþörf eða í stærri fyrir-
tækjum þar sem þörf er á litlum
ljósritunarvélum í einstökum
deildum.
U-Bix 250 er meðalstór ljósrit-
unarvél með góða aðlögunar-
hæfni. Hún hefur alsjálfvirkan
frumritamatara sem skiptir ekki
aðeins um frumrit á réttum tíma
hjálparlaust heldur velur hún
einnig rétta afritastærð fyrir hvert
frumrit og bestu mögulegu lýsingu
hverju sinni. Möguleikar eru jafnt
á stækkun sem minnkun og undir-
strikar það hve U-Bix 250 er frá-
bær lausn fyrir þau fyrirtæki sem
krefjast síbreytilegra stærðar-
möguleika á frumritum og afrit-
um. Frumritamatarinn sér um að
vinna úr allt að 50 frumritum í
senn þar sem stærðir geta verið
allt frá B5 upp í A3. Hann velur
pappírsstærð í samræmi við frum-
ritið og sér um að lýsingin sé rétt
hverju sinni.
U-Bix hefur sjálfvirkan raðara
sem sér um að raða og flokka af-
ritin í allt að 10 hólf, pappírslag-
erinn geymir 1000 blöð tilbúin til
vinnslu og pappírsbakkarnir tveir
taka hvor um sig 250 blöð af
stærðunum A4 og A3.
Áfallalaus ferill vélarinnar er
tryggður með sjálfvirku rafeinda-
eftirliti. Á stjórnborðinu sést
ávallt hvar pappírinn er staddur í
vélinni og hver staða vinnslunnar
er. Ef eitthvað ber út af er það
samstundis tilgreint á stjórnborði.
U-Bix 280 ljósritar aðra eða
báðar hliðar pappírsins sjálfvirkt
og hún ljósritar einnig afmarkaða
hluta frumritsins sé þess óskað.
U-Bix 280 er með sjálfvirkan
frumritamatara og velur sjálf rétta
afritastærð. Þreplaus stækkun og
minnkun frá 65%— 155%
U-Bix 181-Zoom Ijósritunar-
vélin er vél sem gerir kleift að láta
ljósritunarvélina um vinnuna og
unnt er að snúa sér að öðrum
verkefnum á meðan. Vélin annast
sjálf lýsingu og pappírsstærðir og
óþarfi er að mata hana með frum-
ritum. Sjálfvirkur frumritamatari
gerir vélinni kleift að taka út nýtt
og nýtt frumrit úr frumritabakk-
anum án þess að mannshöndin
komi þar nálægt. Með innbyggð-
um rafeindabúnaði er unnt að
„þurrka út“ það sem ekki er ósk-
að eftir að sjáist, s.s. bréfhaus,
nafn, verð eða afslátt. Það þarf
aðeins að gefa henni leiðbeiningar
um hvað eigi að gera og hún sér
um að þurrka það út. U-Bix 181
sér einnig um að raða afritunum
og 10 eða 20 hólfa raðarar sjá um
að allt sé í röð og reglu.
U-Bix 500Z er sérstaklega vel
hönnuð vél sem afkastar 50 ein-
tökum á mínútu. Hún hefur sjálf-
virkan frumritaraðara og annast
sjálf pappírsstærðir. Auk þess er
hún þannig útbúin að hún getur
ljósritað beggja megin á blað
sjálfkrafa og raðar einnig blöðun-
um í rétta röð. Sjálfvirkur tölvu-
búnaður sýnir á ljósaborði hvað
skal gera næst og gefur vélin allt
að 50 skilaboð. U-Bix 500Z
stækkar og minnkar og getur tekið
A2 frumrit eða stækkað upp í þá
stærð.
Mikla athygli vakti vélin U-Bix
CA 1000. Þar er um að ræða stóra
töflu sem skrifað er á og saman-
stendur af fimm flötum og er hver
flötur um sig 880x1240 mm. Þeg-
ar skrifað hefur verið á fyrsta flöt-
inn þarf ekki annað að gera en ýta
á takka og vélin ljósritar það sem
á töflunni stóð — allt upp í 99
eintök í stærðinni A-4. Með því
að ýta á annan takka flyst taflan á
næsta flöt og meðan skrifað er á
hann ljósritar vélin það sem upp-
haflega var skrifað. Vélin er útbú-
in minni þannig að ekki þurrkast
út það sem skrifað hefur verið
nema viðkomandi þurrki það
sjálfur út með svampi. Þessi vél
hentar einkar vel á fundum, sýn-
ingum, tískusýningum, ráðstefn-
um o.s.frv. þar sem möguleiki
þarf að vera fyrir hendi að af-
henda ljósrit af því sem skýrt hef-
ur verið út.
Skrifstofuvélar hafa um nokk-
urt skeið selt vélina U-Bix 180Z
sem er kölluð „ljósritunarvélin
sem hugsar stórt.“ Hún ljósritar í
lit, gerir smátt letur að stóru og
dregur stórlega úr kostnaði við
ónýt afrit. Þessi vél stækkar og
minnkar í 1% þrepum upp í 155%
eða niður í 65% af frumriti.
17