Frjáls verslun - 01.09.1985, Blaðsíða 51
IÐNAÐUR
Starfsmönnum í byggingar-
iðnaði hefur farið fækkandi
Nýlokiö er atvinnukönnun
Landssambands iönaöarmanna
í byggingariönaöi. Spurt var um
starfsmannafjölda, verkefna-
stöðu, helstu verkefni og upp-
sagnir fastra starfsmanna. Alls
bárust svör frá 108 fyrirtækjum
og iðnmeisturum, sem hafa í
þjónustu sinni um 2.400 starfs-
menn eöa yfir fjóröung þeirra,
sem starfa viö byggingariðnaö
á vegum einkaaöila.
Þessar upplýsingar koma fram
i nýjasta fréttabréfi Landssam-
bands iðnaöarmanna. Þar segir
ennfremur:
Niðurstöður könnunarinnar
sýna, að starfsmenn í bygging-
ariðnaöi á landinu öllu hafi verið
um 4% færri í byrjun október en
á sama tíma i fyrra. Er það senni-
lega minni fækkun en margir
höföu vænst. Ástandið er hins
vegar talsvert misjafnt eftir
landshlutum og einnig eftir þvi,
hvers konar starfsemi fyrirtækin
stunda.
Ef litið er á atvinnuástand og
verkefnastöðu eftir þvi, hvaða
starfsemi stunduð er, kemur i
Ijós, að ástandið er einna verst
hjá þeim aðilum, sem hafa sér-
hæft sig í framleiðslu ibúðarhús-
næðis, og á það bæði við um
byggingameistara, sem byggja
og selja á heföbundinn hátt, og
einingahúsaframleiðendur. Eru
ástæðuranr m.a. þær, að sala
hefur dregist saman og verð-
lækkun orðið á fasteignamark-
aðnum, um leið og raunvextir á
lána- og verðbréfamarkaði hafa
hækkað að mun og útborgun
húsnæðislána tafist. Af einstök-
um landshlutum er staöan
greinilega verst á Norðurlandi
eystra, einkum þó á Eyjafjarð-
arsvæðinu, en á Norðurlandi
eystra fækkaði föstum starfs-
mönnum fyrirtækjanna um 11%
frá október 1984 til október
1985. Athygli er vakin á, að þessi
fækkun er til viðbótar við stöðug-
an samdrátt á undanförnum
árum. Þannig sýndi athugun,
sem Landssamband iðnaðar-
manna og Meistarafélag bygg-
ingamanna á Norðurlandi geröu
á sinum tima, að starfsmönnum i
byggingariðnaði á Akureyri og
Eyjafjarðarsvæðinu fækkaði um
30% frá ársmeöaltali 1980 til
fyrsta ársfjórðungs 1984. At-
vinnuhorfur í byggingariðnaði á
Norðurlandi eystra virðast
sömuleiðis ekki góðar, þar sem
fyrirtækin i könnuninni gera ráð
fyrir 19% fækkun starfsmanna
fram í janúar á næsta ári.
Könnunin gefur til kynna, að ef
frá er talið Norðurland eystra, sé
atvinnuástand i byggingariðnaði
ennþá víðast hvar viðunandi og
sums staðar jafnvel gott. Viða á
landinu eru talsvert miklar
framkvæmdir i gangi og verkefni
fullnægjandi, en hins vegar er
fjármögnun þeirra i mörgum til-
vikum ótrygg og greiðslugeta
húsbyggjenda virðist mjög
þverrandi. Auk þess er Ijóst, að
það mun fljótt segja til sin í bygg-
ingariðnaði, ef langvarandi
rekstrarstöðvun og atvinnu-
bresturverðurí sjávarútvegi víðs
vegar á landinu, eins og nú er því
miður talsverö hætta á.
Áætlun fyrirtækjanna um
starfsmannafjölda i upphafi
næsta árs bendir til um 8%
fækkunar starfsmanna í bygg-
ingariðnaði á timabilinu október
1985 til janúar 1986, og er
mestrar fækkunar vænst við
51