Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Síða 60

Frjáls verslun - 01.02.1986, Síða 60
 utmnqar Minni flugfrakt hér á landi en erlendis í alþjóðlegri flugstarf- semi hefur orðið einna mest aukning á vöruflutn- ingum á liðnum misser- um, mun meiri en verið hefur á farþegaflutning- um. Sú hefur einnig orðið raunin hjá íslensku milli- landaflugfélögunum, Amarflugi og Flugleiðum en þau eru svo til einu að- ilarnir er stunda flug með vörur til og frá landinu. Flugleiðir var með um 82% af þessum markaði á síðasta ári. Vöruflutningar Flugleiða í Evrópufluginu stóðu í stað milli áranna 1985 og 1984 voru rúm 2.700 tonn bæði árin. Hjá Arnarflugi varð aukningin í fraktfluginu um 55% milli ára. Magntölum er þó ekki saman að jafna. Alls flutti Flugleiðir um 4.281 tonn af frakt árið 1984 milli Islands og annarra landa og 3.958 tonn árið 1985. Hér er um minnkun að ræða milli ára sem skýr- ist aðallega af um 27,5% minni flutn- ingum frá íslandi til Bandaríkjanna. Einnig varð um 8% minnkun á flutn- ingum frá Bandaríkjunum til Islands. Arnarflug flutti 275 tonn árið 1983, sem var fyrsta heila árið er haldið var uppi áætlunarflugi milli íslands og Hollands, 560 tonn árið eftir og flutningarnir í ár urðu 880 tonn, sem er meira en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Mögulegt er að hlutur flugfraktar á íslandi eigi enn eftir að aukast. Sú hefur verið þróunin erlendis að flugfélög annist flutninga á nálega 1% stykkjavöruflutningum. Allmikið vantar á að því marki sé náð hérlend- is því það er nálægt 10 þúsund tonn á ári. Flugleiðir og Arnarflug eru svo ti! einu aðilarnir sem stunda vöru- flutnigna með flugi til og frá íslandi. Cargolux hafði viðkomu hérlendis síðastliðinn vetur á leið sinni frá Evrópu til Bandaríkjanna, sérstak- lega í sambandi við fiskflutninga. Ljóst er að ekki verður af því í vetur. Cargolux flýgur ekki fraktflug til Is- lands í vetur. Leiguflugfélögin hafa einnig hlaupið undir bagga t.d. þegar skyndilega hefur þurft að sækja varahluti. Vöruflug áætlunarfélag- anna er nær eingöngu bundið við ákvörðunarstaði þeirra, en síðan hafa þau samstarf við önnur félög um framhaldsflutninga. Þannig stundar Arnarflug nú aðeins vöru- flutninga milli Amsterdam og Kefla- víkur og mestu fraktflutningar Flug- leiða eru milli Kaupmannahafnar og íslands, en miklir flutningar eru einnig frá London og Lúxemborg. Þá er að jafnaði nokkuð um fraktflutn- inga á þeim leiðum Flugleiða sem aðeins er flogið til á sumrin. Aðdrættir og framhaldsflutningar Bæði félögin stunda hins vegar í nokkrum mæli aðdrætti til áfanga- staða sinna erlendis. Er þá flogið eða ekið með vörurnar á áfangastaðina og þær síðan fluttar yfir hafið. Þannig flytja Flugleiðir allmikið af vörum frá Hollandi gegnum Lúxem- borg og Arnarflug hefur nýlega opn- að sérstaka skrifstofu í Kaupmanna- höfn til að annast fraktflutninga milli Danmerkur og Islands. Oftast fara þessir aðdrættir fram með flugvél- um, enda miðar flugfraktin að því að stytta sem mest flutningatímann og vörumeðferð er oft betri. Flugfélögin hafa samninga við erlend flugfélög um framhaldsflutn- inga eða aðföng. Er þarna yfirleitt um að ræða gagnkvæma samstarfs- samninga. Getur Arnarflug t.d. feng- ið vörur fluttar frá Bandaríkjunum með KLM og fleiri flugvélögum til Hollands og öfugt og Flugleiðir hafa samninga við fjölda flugfélaga um framhaldsflutninga enda eru Flug- leiðir aðilar að IATA. Samkeppni milli félaganna er all- nokkur. Þannig hefur t.d. Arnarflug tekið blómaflutninga frá Flugleiðum frá Hollandi eftir að félagið hóf að fljúga þangað. Engu að síður flytja Flugleiðir ýmsan varning frá Hol- landi gegnum Lúxemborg til íslands og hafa þannig bætt á sig blómum. Flugleiðir hafa í áratugi haft um- boðsmann í Amsterdam og hefur fél- agið nýleg skipt um mann sem mun halda áfram sölustarfi þar í landi enda þótt Arnarflug stundi áætlunar- flug sitt. 60

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.