Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 62

Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 62
Bækur Bókvitið véfengt Karl Birgisson skrifar frá Bandaríkjunum: Sú var tíðin að eingöngu skáldsögur og ævisögur náðu sæti ofarlega á lista yfir metsölubækur hér í Bandaríkjunum. Á síðustu árum hefur hins vegar mátt sjá þar ritverk um efni sem aðeins fáir út- valdir létu sig varða áður fyrr. Þetta eru bækur um stjórnun og rekstur fyrir- tækja. Bandaríkjamenn vöknuðu upp við vondan draum á seinni hluta síðasta áratugar. Japanir voru að yfirtaka markaði þar sem Bandaríkjamenn höfðu talið sig í forystu, sérstaklega í bíla- og hátækniiðnaði. Japanskar vörur voru ódýrari og oftast betri en þær bandarísku og inn í landið streymdu vörur sem bandarískur iðnaður átti ekkert svar við. Það tók Bandaríkjamenn nokkur ár að átta sig á hvað var að gerast. A eftir fylgdi sjálfsskoðun og gagnrýni á iðnaðinn í landinu, jafnt nýjan sem hefðbundinn. Niðurstaðan varð í stuttu máli sú að bandarísk fyrirtæki væru yfirleitt illa rekin, framleiðni væri lág og úreltar aðferðir notaðar bæði við framleiðslu og stjórnun. I kjölfarið kom svo heilt syndaflóð bóka um hvað mætti betur fara hjá bandarískum fyrirtækjum. í flestum þessara bóka var lögð áhersla á bættar stjórnunaraðferðir og kenn- ingar um stjórnun urðu eins konar tískufyrirbæri í viðskiptaheiminum og meðal fræðimanna. Meðal vand- aðra bóka má nefna Theory Z eftir William G. Ouchi, sem greinir frá japönskum stjómunaraðferðum og hvað bandarískir atvinnurekendur geta lært af þeim. In Search of Exell- ence heitir önnur og er úttekt á nokkmm best reknu fyrirtækjum Bandaríkjanna. Nýlega kom út sjálf- stætt framhald þeirrar bókar, A Passion for Exellence. Allar urðu þessar bækur metsölubækur og em notaðar við kennslu í viðskiptadeild- um flestra háskóla hér í landi. Skóli líf sins Þótt bandarískir háskólar njóti mikillar virðingar í viðskiptaheimin- um og keppt sé um nemendur sem koma út úr þeim bestu, em alltaf til nokkrir efasemdarmenn um gildi bókvitsins. Einn þeirra er Mark H. McCormack, forstjóri og stofnandi International Management Group, sem á líklega manna mestan heiður af því að hafa gert íþróttir að „iðn- aði“ í Bandaríkjunum. Hann hefur nýlega gefið út bók sem stefnir hátt á metsölulistum. Hún heitir einfald- lega What They Don’t Teach You at Harvard Business School eða „Það sem ekki er kennt við viðskiptadeild Harvard- háskóla". McCormack hefur takmarkað álit á skólalærdómi sem undirbúningi fyrir störf í viðskiptalífinu. Slíkur lærdómur veitir í besta falli undir- stöðu, en ýtir í versta falli undir hroka gagnvart þeim sem ekki hafa alla sína þekkingu af bókum. Próf- gráður geta aldrei komið í stað al- mennrar skynsemi og tilfinningar fyrir fólki og umhverfi, að áliti McCormacks. Það er einmitt þetta síðamefnda sem þarf til að ganga vel í viðskiptum, segir hann í bók sinni. Sjálfur er McCormack með lögfræði- próf frá Yale. Bókin skiptist í þrjá kafla: Fólk, Sala og samningaviðræður og Rekst- ur fyrirtækis. Allir eru þeir hlaðnir stuttum sögum frá glæsilegum ferli McCormacks og lærdómi sem af þeim má draga. I fyrsta kafla greinir einfaldlega frá fólki. Það gildir einu hvað maður er að fást við í viðskiptum, segir McCormack. í öllum tilvikum er fyrst og fremst verið að fást við fólk. Einstaklingar eru hver öðrum ólíkir 62

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.