Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1988, Page 23

Frjáls verslun - 01.08.1988, Page 23
Gísli meðal listaverka í Galleríinu. GÓÐ FJÁRFESTING — Hvað er það fleira sem hefur áhrif á myndlistarmarkaðinn? „Það virðast vera ótrúlegustu at- riði. Drungalegt haustveður getur til dæmis dregið úr sölu. Yið urðum einnig áþreifanlega varir við að 01- ympíuleikarnir drógu úr viðskiptun- um. En svo undarlegt sem það kann að virðast voru dagamir sem verkfall verslunarmanna stóð yfir í vetur einn líflegasti tíminn. Þá virtust menn hafa tíma til að huga að öðru en daglegum fyrirtækisrekstri og gáfu sér líka tíma til að sinna myndlistinni." — Áttu von á að gróskan haldi áfram með sama hætti og verið hef- ur? „Ég hef ekki ástæðu til að ætla annað. Ég held því fram að góð list á sanngjörnu verði sé góð fjárfesting, enda eru til nýleg dæmi um það. Hér var seld mynd eftir þekktan listamann stuttu eftir að galleríið var opnað 1984. Hún kom aftur til mats þremur árum síðar. Samkvæmt útreikningum Seðlabankans hafði verðgildi hennar þá aukist um 47-58% umfram verð- bólgu og hæstu útlánsvexti banka á þeim tíma. Þetta er að vísu eina dæm- ið sem Seðlabankinn hefur reiknað fyrir okkur en þetta er ekkert eins- dæmi. Það sýnir sig einnig að auk þess sem góð list er augnayndi og heimilis- prýði þá er hún ákjósanleg fjárhagsleg trygging. Hingað kemur reglulega eldri kona sem á ágætt safn gamalla verka. Hún lætur fara frá sér eina og eina mynd og fær fyrir dágóðan skild- ing, en hún kaupir alltaf aðra yngri og ódýrari í leiðinni, svona rétt til að íjár- festa til framtíðarinnar!" 23

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.