Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 58
BÆKUR
STJÓRNUNARHEILRÆÐI
Iacocca undraðist gífurlega sölu
fyrri bókar sinnar og þá sérstaklega
þann áhuga sem hún skapaði á við-
horfum hans sem stjórnanda. „AUt
sem ég gerði í bók minni var að kasta
fram ákveðnum hugmyndum, svo
sem nauðsyn ársfjórðungsskýrslna
og sterk trú mín á upplýsingastreymi
og boðamiðlun."
„Rekstur", segir Iacocca, „eríeðli
sínu ekkert annað en samansafn af
mannlegum samskiptum. Fólk talar
um að það hljóti að vera til einhver
formúla, eitthvað dularfullt. En svo er
ekki. Farðu af stað með gott sam-
starfsfólk, skilgreindu leikreglurnar,
hafðu gott upplýsingastreymi og góð
samskipti við starfsmennþína, hvettu
þá til dáða og verðlaunaðu þá fyrir vel
unnin störf. Ef þú gerir þetta allt,
getur þér ekki brugðist bogalistin.“
Iacocca hefur sínar persónulegu
skoðanir varðandi „heit“ stjómunar-
málaefni eins og samákvarðanir í
fyrirtækjum, dreifingu valds og
ábyrgðar og ýmislegt fleira. Á öllum
þessum málum hefur hann ákveðnar
skoðanir og gefur sitt persónulega
mat á því hverjum augum hann líti
þessar kenningar.
Þó Iacocca sé frekar sparsamur á
ábendingar og heilræði varðandi
hrein stjómunarleg málefni þá bendir
hann á nokkur boðorð varðandi
stjómunarviðhorf sín:
1. Fáðu til þín besta fólkið. Ekkert
lætur forstjórann líta betur út en
hæfileikaríkir stjórnendur og starfs-
menn.
2. Hafðu forgangsröð þína á hreinu
og komdu þér upp mikilvægum lista
yfir það sem þú vilt koma í verk. Allir
eiga að geta skrifað eina blaðsíðu um
hver forgangsverkefni þeirra séu.
3. Byggðu á stuttum, hnitmiðuðum
fyrirmælum og lýsingum. Eyddu ekki
plássi í kjaftæði. Komdu þér beint að
efninu, sama hvað það er.
4. Skilgreindu verksviðið. Dreifðu
valdi og áþyrgð til góðra starfsmanna
og segðu þeim hvert svið þeirra sé.
5. Hafðu nokkra sterka persónu-
Ieika í fyrirtækinu. Starfsmenn sem
eru óhræddir að segja skoðun sína og
þú getur treyst að taki ekki allt sem
gefið.
En í allri umræðunni um mismun-
andi stjórnunarstfla; hver er skoðun
Iacocca? „Veldu þér þann stfl sem þér
fínnst þægilegastur og haltu þig við
hann. Þú getur átt þér fyrirmyndir en
reyndu ekki að vera annar en þú sjálf-
ur.“
HÆFILEIKAR OG ÍMYND
FYRIRTÆKISINS
Forvitnileg og lærdómsrík er frá-
sögn Iacocca af vandræðamáli sem
Chrysler komst í sumarið 1987. Um
var að ræða sölu á bílum sem hafði
verið reynsluekið með kflómetra-
mælinn ótengdan. En það sem verra
var, þetta voru bflar sem lent höfðu í
hnjaski við reynsluakstur, gert hafði
verið við og þeir seldir sem nýir.
Þetta komst í fjölmiðla sem gerðu úr
þessu mikið mál, sem m.a. olli því að
kaupendur efuðust um heiðarleika
Iacocca og félaga. Skaðaði þetta
ímynd Chrysler og hefði getað valdið
meiri skaða ef Iacocca hefði ekki tekið
málin föstum tökum. í fyrsta lagi leið-
rétti hann mistökin við kaupendur og
keypti t.a.m. alla umrædda bfla til
baka. En það sem meira var um vert
var að hann sagði fólkinu sannleikann.
„Eg biðst afsökunar“ sagði Iacocca.
„Þetta voru heimskuleg mistök og
þau munu ekki koma fyrir aftur“.
Þessi saga ber vitni um sterkan
persónuleika Iacocca og þor hans til
að viðurkenna mistök. Það reynist
stjómendum oft erfitt og er stundum
léttara að víkja sér undan og reyna að
hylma yfir mistökin. Slíkt er ekki til
heilla og bendir Iacocca á Nixon og
Reagan sem dæmi um slíka hegðun.
STÖÐUG LEITAÐMEIRIGÆÐUM
Eitt mikilvægasta verkefni hvers
stjórnanda er að bæta vöru og þjón-
ustu fyrirtækisins. „Eina atvinnuör-
yggi starfsmanna kemur frá gæðum,
framleiðni og ánægðum viðskiptavin-
um,“ segir Iacocca. Hann hefur mikl-
ar áhyggjur af gæðamálum í Banda-
ríkjunum og bendir á Japani og Þjóð-
verja sem fyrirmynd annarra þjóða á
þessu sviði. „Viðhorf þurfa að breyt-
ast,“ segir Iacocca. „Ef menn halda
að þetta sé ekki spurning um peninga
þá er hægt að benda á þá staðreynd
að einn af hverjum fjórum verk-
smiðjustarfsmönnum í Bandaríkjun-
um framleiðir ekki neitt. Hann eyðir
öllum deginum í að lagfæra það sem
hinir þrír hafa verið að gera!“
Og áfram heldur hann að hamra á
hlutverki gæða. „Stjórnendur verða
að byggja upp rétt viðhorf til gæða hjá
PRÓKURUPENNINN
meö þínum persónulega stimpli.
1 þú skrifar nafnið þitt
2 rennir hulstrinu niöur
3 og stimplar.
PöfflSÍfeOÖ
Krókhálsi 6
110 Reykjavík
Sími 671900