Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 32
FRAMKVÆMDIR
Pípan til Reykjavíkur er 27 km löng og tæþur meter íþvermál. Vatnið er um
7 klukkustundir á leiðinni. Innfellda myndin er afAgli Jónssyni
staðarverkfræðingi Hitaveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum.
leiðslu. Risastórir útblástursháfar eru
notaðir til að blása burt umframgufu.
í gufuhitara þéttist gufan og varm-
inn flyst yfir í kalda vatnið sem er
hitað upp í 88 gráður. Til að losna við
súrefni sem fylgir kalda vatninu er
vatnið sent um afloftara þar sem súr-
efni og gas er soðið í burtu við lágan
loftþrýsting. Við það kólnar vatnið
niður í 83 gráður og þannig leggur það
af stað til neytenda á höfuðborgar-
svæðinu.
Kalda vatnið er tekið úr borholum á
Grámel skammt frá Þingvallavatni og
leitt til Nesjavalla eftir 6 km aðveitu-
æð. Þar kemur nægt vatn úr þremur
30 m djúpum borholum.
í fyrsta áfanga er stefnt að 100 MW
varmaafli og auk þess framleiðslu 2.7
MW rafafls fyrir eigin þarfir veitunn-
ar. Til þeirrar orkuframleiðslu er ætl-
unin að nýta fjórar borholur: nr. 6 er
55 MW, nr. 11 er 93 MW, nr. 13 er 90
MW og nr. 16 er 62 MW. Allt eru
þetta s.k. hávermiholur með um 85%
gufuhlutfall, sem þýðir að raforku-
framleiðslugeta 1. áfanga er hlutfalls-
lega mikil. Holur þessar ná niður á allt
að 2300 m dýpi.
27 KMÆÐTIL REYKJAVÍKUR
Aðveituæðin til Reykjavíkur er
engin smásmíði. Stöðvarhúsið sjálft í
Nesjavalladal er í 177 metra hæð yfir
sjávarmáli. Þaðan er heitu vatninu
dælt eftir 90 cm víðri pípu í geymi á
Háhrygg, sem er í 400 metra hæð yfir
sjávarmáli. Þaðan er svo sjálfrennsli
til Reykjavíkur og tekur rennslið um 7
klst. meðan aðeins er búið að virkja 1.
Alhliða viðgerðaþjónusta á öllum
tegundum mótora, tvígengis og
fjórgengis.
Díselviðgerðir.
Járnsmíði.
Sérhæfð viðgerðaþjónusta á
rafstöðvum, jarðvegsþjöppum,
steinsögum o.fl.
Sérhæfð viðgerðaþjónusta á
handlyfturum.
Skemmuvegur34N, P.O. Box 346,
Kópavogur, símar: 641055 og 173013.
32