Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 39
IÐNAÐUR
AUKIÐ SAMSTARF HÁSKÓLANS
OG ATVINNUVEGANNA
Hús Tæknigarðanna á Háskólalóðinni.
Stór og myndarleg bygging
hefur í sumar risið á Melunum
við Suðurgötu í Reykjavík,
skammt sunnan byggingar
Raunvísindastofnunar Háskóla
íslands. Út af fyrir sig má skrifa
mál um það hversu hratt bygg-
ing þessi hefur risið af grunni en
hitt er þó forvitnilegra að
grennslast fyrir um hvaða starf-
semi á þar að verða innandyra.
Um er að ræða íslenskan tækni-
garð í eigu samnefnds hlutafé-
lags og fyrsta spurningin sem
við lögðum fyrir einn stjórnar-
manna, Jafet Ólafsson, var ein-
mitt þessi: Hvað munu menn í
þessu mikla húsi hafa fyrir
stafni?
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON MYNDIR: KRI!
„Ætlun okkar sem að þessu stönd-
um er að þar verði til leigu húsnæði
fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem
vinna að rannsóknar- og þróunar-
verkefnum, einkum á sviði upplýs-
inga- og tölvutækni. Auk þess verður
í húsinu aðstaða fyrir hluta af starf-
semi Raunvísindastofnunar Háskól-
ans og Reiknistofnunar. Tilgangurinn
með þessu starfi er í stuttu máli að
tengja saman atvinnulíf og það starf
sem unnið er af Háskóla íslands. Það
er enginn vafi á því að þau tengsl
verður að efla því margar hagnýtar
upplýsingar sem fást í rannsóknar-
stofum þessarar æðstu menntastofn-
unar landsins nýtast illa úti í samfélag-
inu. Á því viljum við ráða bót.“
Tæknigarðar af því tagi sem senn
ÁN E. EINARSSON
verður tekinn í notkun hér á landi eru
þekkt fyrirbrigði víða erlendis, t.d. í
Bretlandi, Svíþjóð og Danmörku. Þar
hafa menn eflt og aukið samstarf há-
skólastofnana og atvinnuvega með
margvíslegum hætti. En hvaða trú
hefur Jafet Ólafsson á að þetta sam-
starf gangi hér á landi?
„Ef maður horfir til nágrannaland-
anna þar sem svona samvinna skilar
árangri er auðvelt að vera bjartsýnn.
Hitt er annað mál að við rennum auð-
vitað blint í sjóinn með starfsemina og
tíminn verður að leiða í ljós hvort
fyrirtæki og einstaklingar hafa áhuga
á að nýta sér aðstöðuna. Nú, þegar
húsið er á lokastigi hafa margir aðilar
haft samband við okkur og lýst áhuga
sínum á að leigja rými. Engir samn-
39