Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 57
BÆKUR
IACOCCA MÆTTUR AFTUR
TIL LEIKS MEÐ AÐRA BÓK
Greinarhöfundur, Þórður
Sverrisson er
rekstrarhagfræðingur frá
Verslunarháskólanum í
Kaupmannahöfn. Hann
starfar sem markaðsstjóri
Verslunarbanka íslands
hf
Þá er Lee Iacocca mættur aft-
ur til leiks með aðra bók sína
„Talking Straight“ en sú fyrri,
sem út kom árið 1984, seldist í
6.5 milljónum eintaka. Sú bók
vakti feikna athygli enda fjallaði
hún um frægan og umtalaðan
brottrekstur Iacocca frá Ford
bílaverksmiðjunum þar sem
hann hafði starfað í marga ára-
tugi og var orðinn næstæðsti
maður fyrirtækisins á eftir hin-
um skapstóra Henry Ford II.
Ótrúleg en glæsileg var frásögn
Iacocca af því er hann, 53 ára að aldri,
tók við forstjórastólnum hjá Chrysler
sem rambaði á barmi gjaldþrots.
Iacocca og félögum tókst á undra-
verðan hátt að snúa þróuninni við og
stýra Chrysler út úr eríiðleikunum.
Sú saga átti að sjálfsögðu stærsta
þáttinn í því að gera Lee Iacocca að
þeim fræga manni sem hann óneitan-
lega er í dag. Á skömmum tíma varð
hann einn eftirsóttasti fyrirlesari í
heimi því alla fýsti að heyra í mannin-
um sem var aðalhöfundurinn að einni
glæsilegustu björgun stórfyrirtækis í
sögunni.
í fyrri bók sinni varð Iacocca, eðli
málsins samkvæmt, tíðrætt um
stjórnunarleg málefni þ.e. hluti bók-
arinnar fór í að greina frá þeim stjórn-
unaraðferðum sem hann beitti bæði
hjá Ford og þó einkum hjá Chrysler.
Þannig var sú bók mjög viðskiptalegs
eðlis. í þessari nýju bók Iacocca er
hins vegar annað upp á teningnum.
Hér fjallar Iacocca jafnt um lífið og
tilveruna sem og bein stjórunarleg
málefni.
Og ekki er annað hægt að segja en
hann geri það með glæsibrag. Fersk-
leikinn, gamansemin og hreinskilnin,
allt er þetta til staðar á sama hátt og í
fyrri bókinni. Iacocca er einnig af-
slappaðri í frásögn sinni. Hann hefur
stýrt stóru fyrirtæki í stormasömum
veðrum á lygnan sjó og nálgast ævi-
kvöld sitt. Reynslan hefur kennt hon-
um margt bæði í stjómkænsku og
innsýn í mannlegt eðli. Allt þetta ein-
kennir bókina.
En lítum aðeins nánar á skoðanir
Iacocca.
ÆSKAN OG ELLIN
Iacocca hefur ákveðnar skoðanir á
börnum og barnauppeldi. í hans huga
er ekkert mikilvægara en að ala börn
upp í góðum anda, kenna þeim góða
siði og hjálpa þeim til að verða góðir
þjóðfélagsþegnar. „Af öllum þeim erf-
iðu verkefnum, sem ég hef unnið við á
ævinni, hefur ekkert verið erfiðara né
mikilvægara fyrir mig en starf mitt
sem faðir“ segir Iacocca. „Börnin mín
skiptu mig alltaf mestu máli. Ef ég
hefði sigrað heiminn en bömin mín
orðið mislukkuð, hefði ég álitið sjálfan
mig hafa brugðist."
Strax í þessum fyrsta hluta bókar-
innar kemur á óvart hversu einlægur
og hreinskilinn Iacocca er. Að vísu
hefur hann alltaf komið sér beint að
efninu en hér gefur hann lesendum
innsýn í sínar dýpstu tilfinningar.
Þetta gefur bókinni mjög persónulegt
yfirbragð og sker sig að því leyti til frá
örðum bókum svipaðs eðlis.
Um leið og Iacocca fjallar um gildi
heilbrigðar æsku gagnrýnir hann
harðlega meðferð aldraðra í Banda-
ríkjunum. Hann segir að alltof mikið
sé litið á fullorðið fólk sem útbrunna
starfskrafta og án getu til að sinna
verkefnum. „Þetta hugarfar þarf að
breytast, segir Iacocca. „í Japan er
borin mikil virðing fyrir fullorðnu
fólki. Viðhorf austurlandabúans er að
því eldri sem menn eru þeim mun
vitrari séu þeir.“
57