Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 59
öllum starfsmönnum fyrirtækisins.
Allt veltur þetta á starfsmönnunum
sjálfum. Þú getur ekki keypt gæði;
það er eitthvað sem þú verður að
skapa í gegnum starfsfólkið. Þegar
allt kemur til alls þá er það á gæðun-
um sem samkeppnisstaða okkar velt-
ur.“
ÉG ER ÞEIRRAR SKOÐUNAR...
Eins og minnst var á hér að framan
hefur Lee Iacocca skoðanir á öllu milli
himins og jarðar og er óhræddur við
að segja þær. Lítum að lokum á nokk-
ur dæmi:
Nýríku uppamir í Wall Street eru
gagnrýndir harðlega. Verðbréfa-
vangaveltur eru ekki að skapi
Iacocca. Að baki þeirra býr engin
framleiðni, engin sköpun verðmæta
eða fjölgun atvinnufyrirtækja.
Iacocca er einnig öskuillur yfir árás-
um fjársterkra einstaklinga á fyrir-
tæki sem þurfa að eyða stórfé í að
verjast átökunum og skilur þau eftir
mun veikbyggðari. Datt manni nú
óneitanlega í hug persónan Gekko í
mynd Olivers Stone, „Wall Street."
Ákæruæði Bandaríkjamanna fær
sinn skammt. Allir eru að kæra alla í
von um greiðslu skaðabóta. Þetta
skapar vinnu fyrir lögfræðingana. „í
Japan,“ segir Iacocca, „er aðeins einn
lögmaður á hverja 9.600 íbúa en í
USA er einn lögmaður á hverja 360. “
Ronald Reagan hefur ekki orðið
ánægður við lestur bókarinnar. En
samkvæmt ummælum Iacocca eru
litlar líkur á að forsetinn lesi bókina.
Hann telur Ronald Reagan óhæfan
stjórnanda sem eigi t.a.m. afskaplega
erfitt með að einbeita sér að
ákveðnum málum og vilji helst lifa í
einhverri draumaveröld þar sem allir
eru ánægðir. Iacocca tekur víða mjög
djúpt í árinni í gagnrýni sinni á forset-
anum en hins vegar kann hann vel við
manninn Ronald Reagan.
Lækkandi standard í menntakerf-
inu er Iacocca áhyggjuefni. Mennta-
kerfið sé undirstaða framtíðarinnar
og lykillinn að sterkri þjóð. Iacocca
telur það válega staðreynd að 27 millj-
ónir Bandaríkjamanna séu í raun
ólæsir.
Og fleira mætti telja til af beinsk-
eittum skoðunum Lee Iacocca svo
/ þessari nýju bók
sinni fjallar
Iacocca jafnt um
lífid og tilveruna og
bein stjórnunarleg
málefni.
sem hlutverk fjölmiðla, hallimi á ríkis-
búskapnum, viðskiptin við Japani,
vandamál bænda, hvað hann gerði ef
hann væri forseti Bandaríkjanna,
hvað tekur við er hann hættir hjá
Chrysler o.s.frv., o.s.frv.
L0KA0RÐ
Það ætti því að vera ljóst öllum
þeim, sem lesa þessa umsögn, að
Lee Iacocca lætur gamminn geysa í
bókinni. Á 320 blaðsíðum er varla að
finna dauðan punkt í frásögninni og
bókin er því mjög skemmtileg aflestr-
ar. Að sjálfsögðu eru ekki allir sam-
mála skoðunum Iacocca en það er
ljóst að honum er sama. Hann hefur
litríkt mál og beitir andstæðum á lýs-
andi hátt sem e.t.v. fer fyrir brjóstið á
einhverjum. Hann lítur heldur ekki á
sig sem einhvem fræðimann um
stjómun, heldur jarðbundinn fram-
kvæmdastjóra og sterkan leiðtoga.
Sem sagt; skemmtileg, fróðleg og
athyglisverð bók eftir sterkan pers-
ónuleika sem segir nákvæmlega það
sem honum býr í brjósti.
LAGER-
INNRÉTTINGAR
m (n pjl
, V ffe Hr* -
L;
-1 verslanir og vörugeymslur
- Góðar í bílskúrinn og geymsluna
- Sterkar og stílhreinar
- Auðveldar í uppsetningu
- Ókeypis kostnaðaráætlun
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
GARÐASMIÐJAN GALAX SF
LYNGÁSI 15 210 GARÐABÆ
SÍMI 91-53511
GÆÐI TJR STÁXJ