Frjáls verslun - 01.08.1988, Page 77
AUGLÝSINGAGILDI
TÍMARITA
Til þess að gera sér grein fyrir auglýsinga-
gildi tímarita, þarf að finna út hver LESNI
þeirra er eða LESNIEININGAR. LESNI-
EININGAR þessar eru að áliti erlendra sér-
fræðinga mælikvarði á það sem fæst fyrir
auglýsingu í tímariti eða dagblaði. Þær eru
fundnar út með því að margfalda fjölda seldra
eintaka með fjölda einstaklinga sem lesa
hvert eintak. Sú útkoma er síðan margfölduð
með sérstökum greiningarstuðli sem greinir
tímarit frá til dæmis dagblaði. Útkoman sem
er LESNIEININGAR er þá þannig reiknuð:
*j **) ***) ****j
Dagblað/ Upplag/ Lestur á Greiningar- Lesni-
Tímarit: seld eintök: hvert eintak: stuðull: einingar:
Dagblað........... 40.000 x 1,5 x 1,0 = 67.500
Tímarit .......... 17.000 x 4.5 X 2.0 = 153.000
Þannig mæla erlendir sérfræðingar áhrifamátt auglýsinga í dagblöðum og tímaritum.
*) Seld eintök
**) Fjöldi einstaklinga sem les hvert selt
eintak. í könnunum sem eru vísinda-
lega unnar, erlendar og einnig inn-
lendar, hefur það komið fram að 4—6
einstaklingar lesa hvert selt eintak af
tímariti. í sams konar könnunum hef-
ur það komið fram að hvert selt eintak
af dagblaði er lesið af 1,3 —1,7 ein-
staklingum. í íslenskri könnun (Nýtt
líf) kom fram að 4,5 lesendur eru að
hverju seldu eintaki af því blaði. ís-
lensk könnun varðandi dagblöðin
hefur ekki verið gerð. Gera má þó ráð
fyrir að svipuð niðurstaða yrði hér og
víða erlendis.
***) Greiningarstuðull er settur inn til að
greina á milli eðlis rita. Þannig er
stuðullinn 1 oft notaður fyrir dagblöð
og 2 fyrir tímarit. En talið er að tímarit
sé miklu „fastar" lesið en til dæmis
dagblað. Flett sé fljótlega yfir dagblað
en tímarit skoðað vandlega. Sami les-
andi grípi tímaritið aftur til lestrar og
skoðunar en ekki dagblaðið.
****) Lesnieiningar eru þær einingar sem
fengnar eru með margfeldisamtölu
seldra eintaka, lesturs á hverju seldu
eintaki og greiningarstuðli. Þær eru
síðan bornar saman við svipaðan út-
reikning á lesnieiningum annarra
miðla.
Frjálst framtak
^ Hoooun frdlsl frarruk Oðdi hl