Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 9

Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 9
 FRETTIR HERLUF BRYNIR KLÆRNAR í 5. tbl. Frjálsrar versl- unar frá sl. hausti var birt mat blaðsins á því hverjir væru 10 ríkustu menn landsins. Herluf Clausen heild- sali var talinn í þriðja sæti. Hrein eign hans var að mati blaðsins talin nema 1000 milljónum króna. I umfjöllun um Herluf var sagt að starf- semi hans fælist m.a. í kaupum á víxlum og skuldabréfum með afföll- um og innleysingu á vör- um fyrir verslanir. Avöxt- un hans var talin ótrúlega mikil en skakkaföll voru einnig talin mikil. Um ítök hans sagði: „Telja má að hann eigi fjárhagsleg ítök í fjórð- ungi eða jafnvel þriðjungi verslana við allan Lauga- veginn og jafnvel víðar.“ Ilerluf Clausen. Nú berast fregnir af því að Herluf hafi orðið að grípa til harðari inn- heimtuaðgerða en áður, eins og reyndar mun vera algengt hjá þeim sem eiga fé útistandandi um þessar mundir. Þá vakti athygli að Herluf yfirtók þann 17. desember þekkta sér- vöruverslun við Lauga- veginn sem mun hafa skuldað honum mikið fé. Verslun þessa rak hann til jóla en seldi hana svo milli jóla og nýárs. Þarna var bæði um að ræða fast- eign, vörubirgðir og rekstur verslunarinnar. Sagt er að mikill skjálfti hafi farið um búð- areigendur upp og niður Laugaveginn við þessi tíðindi því þarna mun hafa verið gengið harðar fram í innheimtu en jafn- an áður, en Herluf hefur haft á sér orð fyrir að vera laginn að leysa mál við- skiptavina sinna án þess að taka af þeim fyrirtæk- EFTIR SAMEININGU: SJOVA 75% — ALMENNAR 25% í fréttabréfi Verðbréfa- markaðar Iðnaðarbank- OLIS: TAPAR 27 MILUONUM Heldur hljótt hefur verið um gjaldþrot Sjó- leiða hf. en flutningaskip félagsins, Saga I, var kyrrsett erlendis um mitt ár 1987. Öðrum eignum mun vart vera til að dreifa hjá þrotabúinu. Reyndar er skipið ekki til ráðstöf- unar vegna kyrrsetning- arinnar erlendis. Ragnar Hall skiptaráð- andi í Reykjavík hefur haft þrotabú Sjóleiða hf. til meðferðar frá því í júlí 1987 en engin niðurstaða hefur fengist enn sem koinið er. Þótt minni hávaði hafi verið út af þessu gjald- þroti en mörgum öðrum munu engu að síður ýms- ir aðilar tapa gífurlegum fjárhæðum vegna gjald- þrots Sjóleiða hf. Fyrir liggur að Olís hf. þarf að afskrifa 27 mill- jónir króna í lok ársins 1988 vegna þessa máls. Það er mun hærri upphæð en heildarhagnaður Olís hf. var á árinu 1987. Meðal annarra sem verða fyrir tilfinnanlegu tjóni vegna gjaldþrots Sjóleiða hf. eru: Almennar Tryggingar hf, Landsbankinn, Spari- sjóður Hafnarfjarðar, Stálvík, S.Í.S., Toll- stjóraembættið og Gjald- heimtan í Reykjavík. ans í janúar er upplýst að markaðsvirði Sjóvá sé metið á 315 milljónir / ff fl ff ff ff ■»h ■ ■ K ,BB.iiycuivivjimi i! Sjóvá. króna en markaðsvirði Almennra trygginga sé metið á 67 milljónir. Alls var því markaðsvirði þeirra metið á 382 millj.kr. Samkvæmt því yrði hlutur Almennra trygginga í hinu samein- aða tryggingarfélagi ein- ungis 17.5%. Á hluthafafundi í Al- mennum tryggingum í desember var ákveðið að bjóða út nýtt hlutafé að nafnvirði 31 milljón króna og skyldi sölugengi þess vera 1.20. Sam- kvæmt þessu ætti endur- metin eiginfjárstaða Al- mennra trygginga að auk- ast úr fyrrnefndum 67 milljónum í 104 millj. kr. Þannig mun hlutur hluthafa Almennra trygg- inga í nýja félaginu nema um 25% á móti 75% eign- arhluta hluthafa Sjóvá. Fram hefur komið að stjórn nýja félagsins verður skipuð 5 mönnum frá Sjóvá en 2 frá Almenn- um tryggingum. 9

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.