Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 16
Neikvæð afstaða fólks til Hótel íslands hlýtur að vera
Ólafi Laufdal umhugsunarefni.
Hótel Örk fékk verstu útkomuna sem varla kemur á
óvart eftir það sem á undan er gengið.
Ef fyrirtækjunum er raðað upp í
röð eftir neikvæðu viðhorfi aðspurðra
til þeirra, lítur listinn þannig út:
Neikv. í %
1. HÓTELÖRKhf........ 43.8
2. SÍS .............. 34.4
3. HÓTEL ÍSLAND...... 25.6
4. KRON ............. 19.5
5. KJÖTMIÐSTÖÐIN..... 17.6
6. RÍKISSJÓNVARP .... 16.0
7. SÓLhf.............. 9.5
8. STÖÐ2 ............. 9.4
9. OLÍShf............. 9.0
10. ARNARFLUG hf...... 6.6
Unnt er að lesa margt athyglisvert
út úr þessum niðurstöðum.
Sól hf. fær aðra traustsyfirlýsingu
til viðbótar við það að hafa fengið
langflestar tilnefningar þegar fólk var
beðið að nefna fyrirtæki sem það
hefði jákvæð viðhorf til.
Niðurstaða SÍS er á ný óhagstæð í
þessari könnun, með næstflestar
neikvæðar tilnefningar. Einungis
Hótel Örk fær lakari útkomu sem
varla þarf að koma á óvart eftir lang-
varandi umræðu um greiðslustöðvun
og gjaldþrot fyrirtækisins.
Athygli vekur neikvæð afstaða til
Hótel íslands.
Aftur á móti hlýtur niðurstaðan að
teljast vel viðunandi fyrir Kjötmið-
stöðina í kjölfar greiðslustöðvunar og
gjaldþrots.
Fæstir eru neikvæðir í garð Arnar-
flugs þannig að félagið virðist njóta
mikillar samúðar í þröngri stöðu.
Nánast jafnmargir hafa jákvæða af-
stöðu til íslensku sjónvarpsstöðvanna
þótt mun fleiri séu neikvæðir í garð
Ríkissjónvarpsins en Stöðvar 2. Hlut-
fall jákvæðra viðhorfa til beggja er
mjög hátt.
Davíð Sch. Thorsteinsson forstjóri
SÓLARhf:
GLAÐUR OG HRÆRÐUR
„Ég er bæði glaður og hrærður," var
Davíð Scheving Thorsteinsson.
það fyrsta sem Davíð Sch. Thorsteinsson
forstjóri hjá Sól hf. sagði, þegar honum var
tilkynnt um úrslit þessarar skoðanakönn-
unar. Og hann bætti við: „Hér hjá Sól hf.
starfar samhentur og kraftmikill hópur
starfsmanna sem er staðráðinn í að gera
vel og láta áform okkar ganga upp. Allir
starfsmenn fyrirtækisins leggjast á eitt og
hinn jákvæði andi smitar út frá sér og út í
þjóðfélagið.
Fyrir hönd okkar allra hjá Sól hf. vil ég
þakka traustið. Þessi niðurstaða er okkur
mikil hvatning til dáða.“
Guðjón B. Ólafsson forstjóri SÍS:
NEIKVÆÐ FJÖLMIÐLAUMFJÖLLUN
RÆÐUR MIKLU
Guðjón B. Ólafsson hafði m.a. þetta að
segja um neikvæða útkomu SÍS úr skoð-
anakönnuninni:
„Neikvætt viðhorf til Sambandsins, hjá
þeim sem svara í Gallup-könnun Frjálsrar
verslunar um miðjan desember sl., stafar
af ýmsum ástæðum.
16