Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 43
ÁGOST
SÝNISHORN AF FORSÍÐUM
1955
1958
1964
FI=tJ/VLS
/ERZI.UIM
1967
ISjaldeyrlstekjurnar af hernunl
1988
FRJALS
VERZLUN
1970
fijáls
verzlun
1978
1986
Frjáls verslun
BARISTUM KUNNANN
MATVORUVERSIUNIN FCRtST A FSRRI HTNDUR
LAUNIN
A SKRIFSTOFUNNI
blaðið hafði barist gegn frá upphafi,
færi nú senn að ljúka. Þá höfðu stjóm-
völd um þriggja ára skeið takmarkað
innflutning verulega til að freista þess
að jafna inn- og útflutning lands-
manna. Blaðið segir í leiðara 5.-6.
heftis 1950:
„Skömmtunin hefur sýnt það sjálf
að hún átti ekki tilverurétt, hana
skorti eðlilegar forsendur, hún hefur
farið út fyrir réttlætanlegt verksvið,
leysti engan vanda og var því til-
gangslaus. Dauðadóm sinn hefur hún
svo innsiglað með því að skammta
það sem ekki var til.“
Enn átti þó eftir að líða alllangur
tími þar til frjáls innflutningur komst
á, lengri tími en svartsýnustu kaup-
sýslumenn á þessu herrans ári áttu
von á. Meira um það síðar.
GEGN SÖLUTURNUM!
Ný söluaðferð — sennilega eftiröp-
un útlendra verslunarhátta, tók að
skjóta upp kollinum í upphafi 6. ára-
tugarins. Söluturnar eða sjoppur urðu
æ algengari í ýmsum myndum. Kom
að því að bæjarstjóm Reykjavíkur gaf
leyfi fyrir slíkri starfsemi og Frjáls
verslun hafði sína skoðun á málinu:
„Hér í blaðinu var á sínum tíma
rætt rækilega um þessa vágesti og
bent á að slíkt sölufyrirkomulag ætti
ekki að leyfa, m.a. af heilbrigðis-
ástæðum, svo og af því, að þeir rýra
verslun smákaupmanna víða um bæ,
sem þó greiða árlega og hafa greitt
stórar fjárfúlgur í útsvörum til bæjar-
sjóðs. Er hér um varhugaverða ráð-
stöfun að ræða af hendi bæjaryfir-
valdanna, sem kaupmenn og félög
þeirra verða að mótmæla tafarlaust."
FLUHÍNÝ HÚSAKYNNI
Mikið var um flutninga verslana í
Reykjavík í ný húsakynni á árunum
eftir 1950. Verslunin Egill Jacobsen
flutti í húsið nr. 9 við Austurstræti
það ár og mun þá hafa myndast lengri
biðröð við verslun en áður hafði sést í
höfuðstaðnum. Ári síðar var mikið um
flutninga og blaðið skýrir skilmerki-
lega frá þeim.
J. Þorláksson &
Norðmann opnuðu
bygginga- og heim-
ilstækjaverslun í
Bankastræti 11,
Silkibúðin flutti að
Laufásvegi 1, Véla-
43