Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 17
Mjög neikvæð umræða á opinberum
vettvangi, þ.e. í flölmiðlum, hefur verið
viðvarandi gagnvart Sambandinu um all-
langt skeið. Vegna eðlis og uppbyggingar
Sambandsins og Samvinnulireyfingarinn-
ar eru upplýsingar tiltölulega aðgengilegar
og mun aðgengilegri en t.d. hjá flestum
einkafyrirtækjum. Þegar miklir erfiðleikar
eru í rekstri, eins og verið hefur hjá okkur
undanfarið, verður fréttaflutningur óvenju
neikvæður og hann mótar óhjákvæmilega
almenningsálitið.
Þá hafa fjölmiðlar fjallað mjög mikið um
meintar deilur milli forsvarsmanna Sam-
bandsins innbyrðis. Ég er ekki í nokkrum
Guðjón B. Ólafsson.
vafa um að þetta hefur haft neikvæð áhrif á
álit Sambandsins út á við. Ekki hjálpaði
yfirlýsing fjármálaráðherra um að Sam-
bandið ætti hugsanlega ekki nema 10-14
mánuði eftir ólifaða, en hún kom skömmu
áður en könnunin var gerð.
Mér sýnist af þeim takmörkuðu upp-
lýsingum sem ég hef fengið um þessa
könnun, að álit manna fari nær alfarið eftir
því hvort mikil umfjöllun sé um viðkom-
andi fyrirtæki í fjölmiðlum og þá hvers
eðlis hún er. Öflugir íjölmiðlar hafa flutt
mjög neikvæðar fréttir af Sambandinu, ef
ekki lagt það í einelti. Þá má geta þess að
margir líta á kaupfélögin og önnur sam-
vinnufyrirtæki sem hluta af Sambandinu,
þannig að umræða og viðhorf til þeirra
getur bitnað á því, auk þess sem fólk fær
rangar hugmyndir um raunverulega stærð
Sambandsins. 1 íslensku þjóðfélagi þykir
ekki gott að vera stór.
Eftir því sem mér skilst voru svarendur
í þessari könnun ófúsari til að greina frá
neikvæðum viðhorfum sínum til fyrir-
tækja. Það rýrir gildi niðurstöðu könnun-
arinnar nokkuð, en vafalítið mun túlkun
fjölmiðla á þessari könnun þó ekki verða
Sambandinu til vegsauka. Styður þannig
hvað annað í þessum efnum."
Gunnar Óskarsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri
Fjárfestingarfélags íslands hf.:
VERÐBRÉFAFYRIRTÆKIN í SÓKN
„Samkvæmt niðurstöðum þessarar
skoðanakönnunar virðist straumurinn
liggja til verðbréfafyrirtækjanna. Þau
höfðu um 6-7% heildarmarkaðarins í lok
síðasta árs þótt hlutdeild þeirra í aukningu
innlána væri mun meiri, en 23% svara því
til í þessari könnun að þeir myndu velja
verðbréfafyrirtækin ef þeir ættu eina mill-
jón króna til að ávaxta.
Enda verða menn að viðurkenna að hér
er um að ræða sparnaðarform sem er við-
urkennt um allan heim. Neikvæð viðhorf
Gunnar Óskarsson.
vissra stjómmálaafla breyta þar engu um
og stöðva ekki eðlilega framvindu. Það
sýnir sig að fólk hefur vaxandi trú á þessu
formi spamaðar hjá viðurkenndum verð-
bréfafyrirtækjum. “
C0CA-C0LA 0GIBM BEST ÞEKKT
Til fróöleiks látum við hér fylgja En álit fólks í þessum efnum er
með þýdda umfjöllun úr erlendu afar misjafnt og fer talsvert eftir
biaði sem leiðir í ljós niðurstöður heimshlutum.
nýlegrar skoðanakönnunar sem í Bandaríkjunum röðuðu neyt-
sýnir að það er næstum sama hvar endur vörumerkjunum þannig:
drepið er niður fæti í heiminum, því Coca-Cola, CambeU’s, Pepsi,
flestir jarðarbúar þekkja vöruheitin AT&T, McDonaids, American
Coca-Cola og IBM. Express, Kellogg’s, IBM, Levi’s,
Markmið könnunarinnar var að fá Sears, Disney, Hershey's, NBC og
svör við þeirri spurningu hvaða Master Card.
vörumerki almenningur þekkir best Hjá neytendum í Evrópu var út-
og treystir best. Fyrirtækið Landor koman þessi:
Associates sá um framkvæmd Mercedes Benz, Philips (ra-
könnunarinnar en í henni var leitað feindabúnaður), Volkswagen,
álits 3000 almennra neytenda í níu Rolls-Royce, Porsche, Coca-Cola,
löndum. Ferrari, BMW, Michelin, Volvo og
Best þekktu vörumerkin að Adidas.
Coca-Cola og IBM frátöldum voru í Hjá japönskum neytendum var
þessari röð: Sony, Porsche, röðinþessi:
McDonald’s, Disney, Honda, Takashiyma (stærsta keðja stór-
Toyota, Seiko, BMW, Volkswag- markaða þar í landi), Coca-Cola,
en, Mercedes, Pepsi, Kleenex, National (rafeindabúnaöur), Sony,
Nestlé og Rolex. Matsushita, Toyota, Nippon Telep-
Þeir sem að könnuninni stóðu eru hone og Telegraph, Japan Airlines.
þess fullvissir að áðurtöld vörum- Af Öðrum best þekktu vörum-
erki séu þau best þekktu um heim- erkjum og fyrirtækjum heimsins eru
inn og að fólk treysti og hafi álit á 17 bandarísk , 14 evrópsk og 9 jap-
vörum með þessurn merkjum. önsk.
17