Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 22
OPINBER REKSTUR þungamiðja starfs Ríkisendurskoðun- ar. I flestum tilfellum er um að ræða almenna fjárhagsendurskoðun, þ.e. eftirlit með því hvernig viðkomandi stofnun hefur staðið að rekstri sínum og hvort fjárvarsla er samkvæmt við- urkenndum reglum. Sumar ríkisstofnanir halda bókhald sitt hjá ríkisbókhaldi og njóta greiðsluþjónustu í gegnum ríkis- féhirði. Aðrar sjá sjálfar um bókfærsl- una, en senda reikningsskil á þar til gerðum eyðublöðum til ríkisbókhalds svo sem reglur mæla fyrir um. Fá- gætt er að stofnanir eða sjóðir neiti að inna þessar skyldur af hendi. Viðkomandi stofnunum er einnig ætlað að senda ársreikning sinn til Ríkisendurskoðunar. Þar eru reikn- ingar yfirfarnir og skoðaðir með tilliti til fyrirmæla ijárlaga og annarra út- gefinna fjárheimilda, svo sem auka- ijárveitinga. Könnuð eru almenn atriði sem lúta að bókhaldi og fjár- vörslu. Þegar tilefni þykir til er kallað eftir fylgiskjölum og öðrum gögnum frá viðkomandi aðila og þau skoðuð til hlítar. Ekki er einhlítt að eftir þeim fyrirmælum sé farið og eiga þar eink- um í hlut stofnanir sem ekki teljast ríkisstofnanir þó þær séu fastur liður á fjárlögum. Þar má nefna Fiskifélag- ið, sem hefur ekki skilað ársreikningi sínum þrátt fyrir tilmæli. Aðrar hálf- opinberar stofnanir, svo sem Sam- vinnuskólinn og Verslunarskólinn, senda heldur ekki inn reikningsskil sín. Þar er þó ekki um vanrækslu að ræða, heldur hefur ekki verið leitað eftir gögnum þeirra. Þegar ástæða þykir til er tilteknum starfsmanni Ríkisendurskoðunar falið að kanna frekar reikninga viðkomandi stofnunar. Hann kafar þá dýpra í mál- ið, skoðar reikninga fyrri ára og les sig í gegnum „málamöppu", þar sem geymd eru gögn um fýrri viðskipti Ríkisendurskoðunar við hlutaðeig- andi. Því næst fer hann fram á að fá í hendur fylgiskjöl og önnur gögn sem máli þykja skipta eða, ef málið er þeim mun viðameira, fer á staðinn og vinn- ur verk sitt á þeim vettvangi. Að lok- um er málið gert upp og gerðar þær athugasemdir sem ástæða þykir til. Þær eru yfirleitt sendar hlutaðeigandi stofnun skriflega og henni gefinn kostur á að svara þeim innan eins mánaðar. Þegar svar hefur borist er lagt mat á hvort í því felist fullnægj- „RÍKISENDURSKOÐUN ER NÚ SJÁLFSTÆÐ ST0FNUN“ — SEGIR HALLDÓR V. SIGURÐSSON Halldór V. Sigurðsson er rík- isendurskoðandi. Hann var skipaður að nýju í þá stöðu með gildistöku nýrra laga í ársbyrj- un 1987, en hafði áður gegnt henni frá 1. september 1969. Hann þekkir því tímana tvenna í starfi stofnunarinnar og var spurður hvað það væri helst sem hefði breyst, að hans mati, með nýjum lögum um Ríkis- endurskoðun. „Það sem skiptir mestu máli er að Ríkisendurskoðun er nú sjálfstæð stofnun og óháð öllum valdþáttum. Hún starfar að vísu á vegum Alþing- is og forsetar þess skipa yfirmann hennar, en að öðru leyti er hún sjálfs sín herra. Ríkisendurskoðandi ræð- ur yfir starfsliði og skipuleggur starfið. Það má því segja að Ríkis- endurskoðun geti gert það sem henni sýnist, svo fremi að hún hafi rétt fyrir sér. Þegar Ríkisendurskoðun heyrði undir fjármálaráðherra horfði málið öðruvísi við. Þá voru störf okkar unnin fyrir hönd ráðherra og við bár- um ábyrgð gagnvart honum. Hann gat einnig gefið okkur bein fyrirmæli um starfið og við gættum þess sem embættismenn að gera ekkert það sem vann gegn stefnu hans eða gat komið honum í klípu. Meðfram þessu aukna sjálfstæði hefur stofnunin tekið að sér ýmis ný verkefni. Þar má nefna endurskoð- un ríkisreiknings í samvinnu við yfir- skoðunarmenn sem Alþingi kýs. Nýlega kom út skýrsla um endurs- koðun ríkisreiknings fyrir árið 1987, sem er að mörgu leyti tímamóta- plagg. Þetta er fyrsta skýrsla sinnar tegundar og nýlunda hversu fljótt þessar upplýsingar liggja fyrir. Yfir- skoðunarmenn hafa gert athuga- semdir við ríkisreikning svo sem þeim er ætlað, en þarna er í fyrsta sinn safnað saman rökstuddum ábendingum um það sem aflaga hef- ur farið í ríkisrekstrinum. Með þessu móti fá alþingismenn betri upplýsingar um notkun og nýtingu á almannafé, sem þeir útdeila. Upp- lýsingarnar liggja lílca fyrr frammi, sem er heilmikill ávinningur. Annað nýmæli sem við höfum beitt okkur fyrir er svonefnd stjórn- sýsluendurskoðun, sem felst í víð- tækari skoðun á ríkisfyrirtækjum. Þá er litið til þess hvernig viðkom- andi stofnun gegnir því hlutverki sem henni er ætlað lögum sam- kvæmt, skoðuð stjómun og skipu- lag, hvernig er háttað nýtingu á mannafla og fé og fleira í þá veru. Þetta er starfsemi sem sambærileg- ar stofnanir erlendis leggja æ meiri áherslu á. Eg sé fyrir mér að Ríkis- endurskoðun taki að sér fleiri slík verkefni í framtíðinni, án þess þó að vanrækja fjárhagsendurskoðunina sem einnig er mikilvæg.“ — Hvaða áhrif hefur aukin fjöl- miðlaumræða á störf ykkar? „Það er til góðs að umræða sé meðal almennings um þá hluti sem við fjöllum um, þ.e. nýtingu ogmeð- ferð almannafjár. Hins vegar virðist nokkuð tilviljanakennt hvaða mál það eru sem fá umfjöllun í fjölmiðlum og sú umræða er oft af litlu tilefni 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.