Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 37

Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 37
verslunar umsögn er óhætt að full- yrða að blaðið hafi sjaldan verið betra. Greinar voru tiltölulega stuttar, myndskreytingar verulegar, auglýs- ingar innan um efni og efnið fjöl- breytt. Blaðið var hins vegar unnið af áhugamönnum og lítið fór fyrir viðtöl- um og öðru sem minnir á nútíma blaðamennsku. En það var bætt upp með líflegum efnistökum og greinum eftir fjölda manna: Björn Ólafsson, Thor Thors, Vilhjálm Þ. Gíslason, Pétur Ó. Johnson, Adolf Björnsson, Konráð Gíslason, Pétur Ólafsson, Hörð Bjarnason, Magnús Kjaran, Birgi Kjaran, Hallgrím Benediktsson, Jónas Kristjánsson, Garðar Gíslason, Björn Kristjánsson, Sigurð Kristjáns- son, Árna Jónsson frá Múla og Guð- mund Einarsson frá Miðdal. SAMKEPPNIUM AUGLÝSINGAR Frjáls verslun hafði ekki einungis áhyggjur af versnandi árferði í þess- um efnum fyrir þjóðarbúið. Blaðið sjálft barðist fyrir lífi sínu og til að vekja aukinn áhuga auglýsenda var efnt til samkeppni um bestu auglýs- inguna í hverju hefti blaðsins. Fékk sá auglýsandi, sem að mati dómnefndar var með bestu auglýsinguna, hana prentaða í næsta tölublaði á eftir, án endurgjalds. Skömmu síðar lagðist keppnin niður en hvað sem því olli hafði hún orðið til þess að vekja at- hygli á þessu vaxandi fyrirbrigði ís- lenskra viðskipta. Mátti sjá þess glöggt merki á síðum Frjálsrar versl- unar síðar. GEGN ÁTÖKUM Á VINNUMARKAÐI þessu kalli en reyna að fá samninga við vinnuveitendur sína á allt öðrum grundvelli en gerist innan hinna svo- nefndu alþýðusamtaka þar sem hnef- inn er reiddur til ógnunar á meðan samið er. Verslunarfólkið veit að vinnuveitendur vilja taka fullt tillit til þarfa þess og treystir því að samning- ar takist." Annars staðar á vinnumarkaðnum kvað við talsvert annan tón. Kjara- deilur voru algengar enda þyrsti menn í kjarabætur eftir atvinnuleysi undanfarinna ára og þar af leiðandi lágar tekjur. Hér skal ekki lagður dómur á hvaða aðferð í kjarabarátt- unni reyndist best en flestir eru þó sammmála um að „Blessað stríðið“ hafi reynst besta kjarabótin fyrir flesta Mörlandana. KAFLASKIPTIMEÐSTRÍÐI Með þátttöku íslands í styrjöldinni í maí 1940 urðu kaflaskipti í íslenskum verslunarmálum og það kemur vel fram í 5. tölublaði Frjálsrar verslunar en þar birtist eftirfarandi hugleiðing, sennilega eftir ritstjórann Einar Ás- mundsson: „Við höfum misst viðskiptalöndin hvert af öðru. Fyrst Pólland, þá Þýskaland, síðan Danmörku og Nor- eg og loks Holland og Belgíu. Þótt Svíar séu enn utan við styrjöldina, er land þeirra þannig sett, að ekki getur orðið um mikil viðskipti við þá að ræða eins og nú horfir. En í þessum löndum öllum höfum við misst mark- aði fyrir helming af framleiðslu- vöru landsmanna. Jafn- framt hefur verið tekið fyrir vörukaup frá þess- um löndum. En innflutn- ingurinn frá þeim var síð- astliðið ár um 60% af heildarinnflutningi til lands- ins.“ Thor Thors alþingismaður skrifar grein í sama hefti um aukin viðskipti við S-Ameríku þar sem „búa vaskar þjóðir og batnandi" eins og komist er að orði í pistlinum „Frá borði ritstjórans." Þar segir einnig frá komu verslunar- erindreka til landsins frá Bretlandi og Bandaríkjunum og þess beðið með óþreyju hvort það geti leitt af sér auk- in viðskipti við þau lönd. Eins og áður er að vikið var VR á þessum tíma einnig félag atvinnurek- enda. Málflutningur Frjálsrar versl- unar bar keim af þessu og dæmi um það er leiðari frá því í júlí 1940, en þar segir m.a.: „Þeir sem á undanförnum árum hafa gert mest af því að æsa menn upp til verkfalla og spilla sambúð vinnuveitenda og starfsfólks nota nú tækifærið og hrópa til verslunar- manna: Komið til okkar því innan al- þýðusamtakanna munið þið fá kjara- bætur! En verslunar- og skrifstofufólk mun ekki hlýða DÖKKBRÚNT Á MIÐVIKUDÖGUM... Áhrifa vegna komu verslunarfull- trúanna frá Ameríku og Bretlandi og tíðra vesturfara innlendra kaupsýslu- manna í upphafi stríðsins fór brátt að gæta á síðum Frjálsrar verslunar. Auglýsingarnar tala sínu máli. Til dæmis auglýsti Ólafur Gíslason & Co hf: „Við útvegum flestar vörur frá Ameríku" og Sig. Þ. Skjaldberg aug- lýsti: „Ávallt fyrirliggjandi vörur frá Ameríku, svo sem strásykur, mola- sykur, hveiti, haframjöl.Einnig er hugsanlegt að 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.