Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 52
AFMÆLI
„ÞAÐ VANTAÐIVETTVANG FYRIR
UMR/EÐU UM VERSLUN OG VIÐSKIPTI"
— SEGIR JÓHANN BRIEM ÚTGEFANDI FRJÁLSRAR VERSLUNAR1967-1982
Jóhann Briem.
Fimmtíu ára afmælis Frjálsr-
ar verslunar verður ekki minnst
án þess að ræða við Jóhann
Briem fyrrum útgefanda blaðs-
ins og ritstjóra um skeið. Hann
tók að sér blaðið árið 1967 og á
næstu árum umbreyttist stopul
útgáfa í öflugt tímarit um við-
skiptamál. Stofnaði hann
Frjálst framtak hf. í því skyni og
á fáum árum óx fyrirtækið úr því
að gefa út eitt tímarit í eitt öflug-
asta útgáfufyrirtæki landsins.
En upphafið var Frjáls verslun
og við spurðum hann um tildrög
þess að hann hóf afskipti af rit-
inu:
„Tildrögin voru þau að ég ræddi
um nauðsyn á útgáfu tímarits um
verslunar- og viðskiptamál við Jón Jú-
líusson, sem þá var framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs íslands og fleiri
heiðursmenn, sem stóðu að útgáfu
Frjálsrar verslunar, menn eins og
Birgi Kjaran og Gunnar Magnússon.
Frjáls verslun hafði verið gefin út um
árabil af samnefndu útgáfufyrirtæki,
en að baki því stóðu nefndir menn og
margir fleiri sem af áhuga héldu út
þessu tímariti, enda þótt allir væru
störfum hlaðnir á öðrum vettvangi.
Frjáls verslun hafði komið út
óreglulega síðustu árin og leiddu við-
ræður mínar við þessa menn til þess
að ég tók að mér útgáfuna, bar ábyrgð
á henni að öllu leyti og jafnframt þessu
var útgáfufyrirtækið Frjáls verslun
lagt niður.“
„Það var tilviljun og áhugi sem réði
mestu um að ég haslaði mér völl á
þessu sviði og hvatning frá þeim
mönnum sem gerðu sér grein fyrir
nauðsyn þess að út kæmi tímarit um
verslun og viðskipti. Og ég þarf varla
að taka það fram að ég naut vitaskuld
bæði stuðnings og hvatningar frá
mörgum forystumönnum í verslun í
þessu starfi mínu. í því sambandi gæti
ég nefnt fjölmarga einstaklinga, en
auk þeirra sem þegar eru nefndir
koma mér í hug menn eins og Kristján
G. Gíslason formaður Verslunarráðs-
ins, Guðmundur H. Garðarsson for-
maður VR, Höskuldur Ólafsson og
Kristján Oddsson bankastjórar Versl-
unarbankans, Kristján Guðlaugsson
fyrrum stjórnarformaður Loftleiða og
Sveinn Sæmundsson hjá Flugfélagi
íslands."
Nú vex blaðið mjög undir þinni
stjórn. Hver er skýringin á því að þínu
mati?
„Það vantaði vettvang fyrir um-
ræður um verslun og viðskipti. Eftir
byltinguna, sem viðreisnarstjómin
með Gylfa Þ. Gíslason þáverandi við-
skiptaráðherra í broddi fylkingar hafði
beitt sért fyrir nokkrum árum áður á
52