Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.01.1989, Blaðsíða 45
enda blaðið óvenju stórt eða 102 síð- ur. í næsta hefti tímaritsins er tilkynnt um ráðningar tveggja manna í ábyrgð- arstöður: Sverrir Hermannsson nýútskrifaður viðskiptafræðingur réðst til Vinnuveitendasambands ís- lands og Guðmundur H. Garðarsson, síðar formaður VR gerðist starfsmað- ur Iðnaðarmálastofnunar Islands. LAXNESSí FRJÁLSRIVERSLUN Halldór Laxness rithöfundur var ekki oft á síðum Frjálsrar verslunar en þess er þó minnst með teikningu eftir Halldór Pétursson þegar hann fékk Nóbelsverðlaunin árið 1955. Undir teikningu af skáldinu stendur í anda viðskiptanna: „Nú þurfum við Hemingway ekki að fá lánaða peninga hvor hjá öðrum lengur.“ HLÉÍTVÖÁR Með árinu 1955 lauk ritstjórnarferli þeirra Gunnars Magnússonar og Njáls Símonarsonar, sem höfðu tekið við ritinu síðla árs 1950. Um leið hætti Verslunarmannafélag Reykjavíkur útgáfunni og tvö ár liðu þar til merki þess var reist við að nýju. í ársbyrjun 1958 var Frjáls verslun Útgáfufélag hf. stofnað og Pétur Pét- ursson kaupmaður ráðinn ritstjóri að Frjálsri verslun. Að félaginu stóðu einstaklingar úr Verslunarráði ís- lands, VR, Félagi íslenskra iðnrek- enda, Félagi stórkaupmanna og Sam- bandi smásöluverslana. Fyrsta hefti hins nýendurreista blaðs kom út í apr- íl sama ár og breytti verulega um svip frá því sem áður hafði verið. Fjölgaði mjög greinum um efnahagsmál eftir menn eins og Jóhannes Nordal, Ólaf Björnsson, Birgi Kjaran, Jónas Har- alz, Barða Friðriksson, Pétur Bene- diktsson, Magna Guðmundsson, Benjamín Eiríksson og Valdimar Kristinsson er tók við ritstjórn árið 1959. Þá víkkaði blaðið grundvöll sinn að því leytinu að farið var að fjalla um iðnað og aðrar greinar atvinnulífsins. Einnig var tekin upp sú nýbreytni að prenta fylgirit um afmörkuð mál með blaðinu. VIÐREISN AÐ VÖLDUM Frjáls verslun fagnar því mjög í 1. hefti 1960 að ríkisstjórn Ólafs Thors er sest að völdum. Segir í leiðara á þessa leið: „Það má með sanni segja, að ís- lenska þjóðin hefur undanfarið staðið á krossgötum. Framundan voru tvær aðalleiðir. Önnur stefridi í áttina til eðlilegs frelsis og jafnvægis í efna- hagslífinu. Hin var leið áframhaldandi hafta, hallarekstrar útflutningsat- vinnuveganna og árlegra „efnahags- ráðstafana" með öllu því, sem þeim hefur fylgt. Núverandi ríkisstjóm hef- ur markað stefnuna, hún hefur ákveð- ið að velja fyrrnefndu leiðina. Ekki er það af því að hún sé svo auðfarin, heldur af því að hana verður að fara, ef þjóðinni á að vegna vel í framtíð- inni.“ FYRSTU LITMYNDIRNAR Prenttækni fór fram á þessum ár- um og í 6. hefti Frjálsrar verslunar 1960 birtast fyrstu litmyndirnar í tímaritinu. Þær voru af tveimur verk- um Guðmundar Thorsteinssonar, Muggs, en þá hafði nýverið komið út ævisaga hans skráð af Bimi Th. Bjömssyni listfræðingi. Myndimar voru: Kristur birtist lærisveinunum á leið til Emmaus og Við stekkinn. Þessi tímamót urðu í jólablaði þess árs, en þá hafði Frjáls verslun um nokkurra ára skeið birt ýmiss konar menningarlegt efni eftir því sem þótti hæfa tilefninu. Úrklippa úr Alþýðublaðinu þegar Frjáls verslun tók illþyrmilega á Eggert G. Þorsteinssyni fyrir að hafa fellt ríkisstjórnarfrumvarp um frjálst verðlag undir lok Viðreisnar. BÍLABANKI OPNAÐUR! Frjáls verslun skýrir frá því í 1. hefti ársins 1963 að Verslunarbankinn hafi opnað útibú í Hekluhúsinu við Laugaveg, sem þá var nýbyggt. Sú nýbreytni var tekin upp þar að við- skiptavinir gátu fengið afgreiðslu án þess að þurfa að stíga út úr bifreiðum sínum. Þess í stað fóru viðskiptin fram í gegnum opinn glugga hverrar bifreiðar. „Slíkir bílabankar hafa tíðk- ast erlendis og átt vaxandi vinsældum að fagna,“ segir í blaðinu. Þessi nýj- ung í bankamálum virðist hins vegar ekki hafa átt upp á pallborð landans því einhverra hluta vegna lagðist bíla- banki Verslunarbankans brátt af. Með þessu hefti taka við ritstjórn blaðsins þeir Gunnar Bergmann og Styrmir Gunnarsson, núverandi rit- stjóri Morgunblaðsins. Þeir helga eitt hefti ársins íslenskum ferðaiðnaði og ræða m.a. við Þorvald Guðmundsson forstjóra, Hörð Sigurgestsson hótel- stjóra Hótel Garðs, sem stúdentar ráku, Óttar Möller forstjóra Eim- skips, Örn 0. Johnson forstjóra Flug- félags íslands og fleiri. Þar kemur m.a. fram að ferðaskrifstofur í einka- eign eru allmargar og nefnir blaðið Ferðaskrifstofu Zoega, Sögu, Sunnu, Útsýn og Lönd og leiðir. Auk þess er svo minnst á „einokunarrisann“ Ferðaskrifstofu ríkisins í miður vin- samlegum tón. frjá/s verz/un 100 STÆRSTU FYRIRTÆKIN Á ÍSLANDI 1981 1 Samband islenskra samvinnufélaga 2 Sölumiðstoð hraöfrysfihúsanna 3 Landsbanki íslands 4 Sölusamband islenskra fiskframleiðenda 5 Oliufélagið h.f. Listi yfir 100 stærstu fyrirtæki landsins fór að birtast í Frjálsri verslun og jók hann mjög hróður blaðsins: 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.