Frjáls verslun - 01.01.1989, Page 23
andi skýringar á því sem um var
spurt. Ef svo reynist ekki vera, er
send framhaldsathugasemd og svar-
frestur veittur yfirleitt í 1-2 vikur.
Lokastig málsins felst svo í bréflegum
niðurstöðum ríkisendurskoðanda.
Þann boðskap á stofnunin að meðtaka
og framfylgja honum, ellegar gera
Ríkisendurskoðun grein fyrir ann-
mörkum á því.
Ríkisendurskoðun sendir ráðu-
neytum afrit af öllum athugasemdum
sínum varðandi stofnanir sem undir
þau heyra. A því er hins vegar allur
gangur hvort stofnanirnar gera slíkt
hið sama varðandi svarbréf sín, en
viðkomandi ráðuneyti hefur tækifæri
til að fylgjast nokkuð grannt með
þessum viðskiptum. Mál sem flokk-
ast undir þárhagsendurskoðun eru
hins vegar ekki gerð opinber af hálfu
Ríkisendurskoðunar.
Á þessu er ein mikilvæg undan-
tekning. Nýlega kom út sameiginleg
skýrsla yfirskoðunarmanna ríkis-
reiknings og Ríkisendurskoðunar um
endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið
1987. Skýrsla þessi var lögð fyrir Al-
þingi og í henni eru raktar með al-
mennum orðum athugasemdir við
starfsemi ýmissa stofnana. Þetta er
fyrsta skýrsla sinnar tegundar og því í
fyrsta skipti sem Ríkisendurskoðun
gerir athugasemdir sínar opinberar á
þennan hátt. Líklegt má telja að með
þessu hafi Ríkisendurskoðun viljað
herða á viðkomandi stofnunum varð-
andi úrbætur og ennfremur gefa fjár-
veitingavaldinu nokkra hugmynd um
Híilldór V. Sigurðsson ríkisendurskoðandi.
eða engu. Það er ýmislegt forvitni-
legt fyrir fjölmiðla í því sem við erum
að fást við og þess vegna kannske
eðlilegt að þeir sækist eftir upplýs-
ingum héðan.
Vinna að fjárhagsendurskoðun er
trúnaðarmál, nema það sem kemur
fram í opinberum skýrslum, t.d.
fyrrnefndri skýrslu um ríkisreikn-
ing. Að lokinni stjórnsýsluendur-
skoðun er hins vegar gefm út opin-
ber skýrsla um niðurstöðurnar. Að
öðru leyti er ekki hægt að segja að
við fylgjum ákveðinni stefnu að því
er varðar samskipti við fjölmiðla.“
hvar pottur sé helst brotinn í ríkis-
kerfinu.
Áðumefnd skýrsla er reyndar
merkileg fyrir fleiri sakir. Það er eins-
dæmi að tekist hafi að ljúka endur-
skoðun ríkisreiknings á svo skömm-
um tíma og skila skýrslu til Alþingis
um það verk. Til samanburðar má
nefna að enn hefur Alþingi ekki af-
greitt ríkisreikning allt frá árinu 1981.
Þetta hlýtur að teljast enn frekara
merki um að breytingar á starfsemi
Ríkisendurskoðunar séu til mikils
batnaðar varðandi skilvirka stjóm-
sýslu.
STJÓRNSÝSLUENDURSKOÐUN
Einn þáttur í starfsemi ríkisendur-
skoðunar er sá sem nefnist stjórn-
sýsluendurskoðun. Stofnuninni er nú
veitt heimild til slíkrar endurskoðunar
í lögum en jafnframt gert skylt að
skýra fjárveitinganefnd Alþingis frá
ákvörðunum sínum þar að lútandi.
Stjómsýsluendurskoðun er um-
fangsmeiri en hefðbundin fjárhags-
endurskoðun. í henni felst úttekt á
starfsemi stofnunar, verk hennar eru
borin saman við þau lög og reglugerð-
ir sem um hana gilda, imira skipulag
STÁLGRINDAR-
HÚS
- Auðveld í uppsetningu
- Stuttur byggingartími
- Sveigjanleg byggingakerfi
- Breytingar auðveldar
- Stálklæðning frá Inter Profiles
- Steinullareinangrun
- SFS festingar
- C og Z langbönd frá Inter Profiles
- Ókeypis kostnaðaráætlanir
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
GALAXSF
GARÐABÆ
GÆÐI TJR STÁJLI
23