Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 32

Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 32
A VETTVANGI MENN ÁRSINS1988 í ÍSLENSKU VIÐSKIPTALÍFI: AFHENDING VIÐURKENNINGARSKIALA munn ÁKSINS l‘)»» I VIDSKHMAIJflNl' A ISI.ANDI n Tim 1 C~'.rTTT~~r MIÍNN ÁKSINS 1988 1 |( )l I ANN l< 1 sk;ikv(.< , 1III (. \s< >N i Menn ársins 1988 í viðskiptalífinu á íslandi, Sigtryggur Helgason og Jóhann Jóhannsson. Eins og kunnugt er af fréttum völdu Frjáls verslun og Stöð 2 menn ársins 1988 í viðskiptalíf- inu á Islandi í kvöldverðarboði á Hótel Sögu þann 28. desember sl. Meðal gesta voru Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra og Davíð Oddson borgarstjóri. Magnús Hreggviðsson formaður dómnefndar lýsti kjörinu og sagði þá m.a.: „Þetta er í fyrsta skipti sem fjöl- miðlar velja menn ársins í viðskiptum hérlendis en víða erlendis er þekkt að þeir sem þótt hafa náð frábærum ár- angri í viðskiptum séu heiðraðir“. Magnús gat þess að nefnd skipuð 6 mönnum hefði annast valið. Auk hans áttu sæti í nefndinni þeir Ámi Vil- hjálmsson prófessor í viðskiptadeild TEXTI: HELGI MAGNÚSSON MYNDIR: GUNNAR Háskóla íslands, Sigurður Helgason stjómarformaður Flugleiða, Erlendur Einarsson fyrrverandi forstjóri S.Í.S., Sighvatur Blöndahl fram- kvæmdastjóri markaðssviðs Stöðvar 2 og Helgi Magnússon ritstjóri Fijálsrar verslunar. Magnús sagði eftir að hafa tilkynnt að samkvæmt samdóma niðurstöðu nefndarinnar væru stjómendur og að- aleigendur Brimborgar, þeir Jóhann Jóhannsson og Sigtryggur Helgason, menn ársins 1988 í viðskiptalífinu á íslandi: „Þeir hafa byggt fyrirtækið Brim- borg hf. upp af mikilli eljusemi og dugnaði og einkum verið þekktir fyrir innflutning á Daihatsubílum frá Japan. Árið 1988 er tímamótaár í rekstri þeirra því um mitt árið keyptu þeir annað bílafyrirtæki, Volvo-umboðið Velti hf., og sameinuðu fyrirtækin á skömmum tíma í stærri og hagkvæm- ari rekstrareiningu." Loks lét Magnús Hreggviðsson þess getið að tilgangur Frjálsrar verslunar og Stöðvar 2 með útnefn- ingunni væri sá að beina athyglinni að því sem vel væri gert í viðskiptum og vekja jákvæða umræðu um störf stjórnenda með því að heiðra þá sem náð hefðu frábærum árangri og hrint góðum hugmyndum í framkvæmd. Að ræðu Magnúsar lokinni afhenti Erlendur Einarsson þeim Jóhanni og Sigtryggi viðurkenningarskjöl til staðfestingar á niðurstöðu nefndar- innar. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra óskaði sigurvegurunum til hamingju með þann heiður sem þeim hefði hlotnast. Hann ræddi m.a. um þann vanda sem því fylgir að velja menn ársins með þessum hætti vegna þess 32

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.