Frjáls verslun - 01.01.1989, Page 68
STJORNKERFIÐ AXEL
Upphafsvalmyndin í AXEL er ekki aðeins til skrauts heldur koma fram á henni ýmsar tæknilegar upplýsingar um
viðkomandi vélbúnað. Sé klukkukort í tölvunni birtist einnig rétt dagsetning og tími.
Fyrir skömmu kom út hjá Töl-
veli h.f. í Reykjavík stjórnkerfið
AXEL fyrir PC tölvur. Hér er um
að ræða samræmingu nokkurra
s. k. „Utility“-kerfa í einni sam-
stæðu sem hefur verið samhæfð
og íslenskuð að öllu leyti. Kerfið
er byggt upp með valmyndum
með íslenskum heitum, því fylg-
ir íslensk handbók og er texti
hennar innfelldur í kerfið og
kemur sem leiðbeiningar á skjá.
Það virðist mega skipta AXEL í tvo
meginhluta, valmyndakerfið og skrá-
stjórnkerfi með ritþór en hann er ekki
fullþróaður þótt hann dugi til að
breyta innihaldi textaskráa. AXEL er
ekki hugsað fyrir sérfræðinga heldur
sem hagræðingartæki, hagnýtt verk-
færi, fyrir fólk sem notar tölvu í störf-
um sínum. Mér sýnist hafa verið lögð
talsverð vinna í að einfalda hlutina,
t. d. hefur handbókin verið stytt með
því að krækja fyrir vífillengjur og tel
Leó M.
Jónsson
hefur
umsjón
með tölvuefni
ég það vera tákn um bjartari tíma
framundan í innlendri hugbúnaðar-
gerð en handbókargerð og íslenskan
hefur of oft orðið kerfísfræðingi að
fótakefli.
AXEL er á tveimur disklingum, 30
skrár sem taka um 55 kb á hörðum
diski. Kerfið má einnig ræsa af disk-
lingum. Uppsetning á harðdisk er
sjálfvirk og upphafsaðgerð lýst
fremst í handbókinni. Kerfið er gert
fyrir „Monochrome" einlitsskjá og lit-
skjá/venjulegan einlitsskjá og er sér-
stakt uppsetningarforrit til að stilla
inn (AXELSKJAR) á kerfisdiskinum.
Eins og áður sagði er AXEL sam-
stæða nokkurra sjálfstæðra hjálpar-
forrita. Með þessu ódýra stjórnkerfi
er notanda sem þarf að vinna með
skráarsöfn svo sem að leita, merkja,
raða upp, breyta, afrita, grisja, um-
skíra, víxla skrám á milli safna, breyta
brautum, skoða skrár, prenta og
keyra forrit o.fl. gert kleift að vinna