Frjáls verslun - 01.04.1993, Síða 8
FRETTIR
SIGUR í SAMKEPPNI:
BÓK MEÐ DÆMISÖGUM ÚR ÍSLENSKU ATVINNULÍFI
Út er komin athyglis-
verð bók eftir Boga Þór
Siguroddsson, 33 ára
rekstrarhagfræðing, um
markaðsmál með dæmi-
sögum úr íslensku at-
vinnulífi. Útgefandi bók-
arinnar eru Islenska
markaðsþjónustan en
dreifingu annast Bóka-
klúbbur atvinnulífsins,
Framtíðarsýn hf. Bókin
heitir Sigur í samkeppni.
Lengd hennar er 240
blaðsíður.
„Bókin skiptist í fjóra
meginhluta,“ segir Bogi.
„í fyrsta hluta er fjallað
um hlutverk markaðs-
fræðinnar og mikilvægi
þess að stjórnendur fyrir-
tækja miði allt starf sitt
við að uppfylla þarfir við-
skiptavina sinna. í öðrum
hluta segir frá þeim að-
gerðum og aðferðum sem
markaðsfólk hefur yfir að
ráða við störf sín. Þriðji
hluti er um aðferðir til að
greina rekstrarumhverfi,
meta samkeppni og hluta
markaðinn niður eftir
þörfum og óskum neyt-
enda. Ennfremur er í
þessum hluta fjallað um
kauphegðun neytenda á
Höfundur bókarinnar Sigur í
samkeppni, Bogi Þór Sigur-
oddsson, er 33 ára og lauk
mastersprófi í rekstrarhag-
fræði frá Bandaríkjunum
1987.
neytenda- og fyrirtækja-
markaði. Fjórði og síðasti
hluti er um áætlanagerð
og stefnumótun mark-
aðsstarfsins. Mikilvægi
markaðsrannsókna og
upplýsingaöflunar er sér-
staklega tekið fyrir.“
I bókinni leggur Bogi
áherslu á að tengja mark-
aðsfræðin íslenskum að-
stæðum með því að birta
um 20 dæmisögur úr
íslenskum fyrirtækjum
sem eru nafngreind.
„Auk styttri dæma sem
skotið er inn í textann er
að minnsta kosti ein
dæmisaga úr íslensku at-
vinnulífi í hverjum kafla.
Dæmin úr markaðsstarfi
íslenskra fyrirtækja
tengja fræðin raunveru-
leikanum og gera bókina
meira lifandi sem er við
hæfi í bók um markaðs-
mál.
Dæmisögurnar eru
byggðar á viðtölum og
upplýsingum frá stjórn-
endum í viðkomandi
fyrirtækjum. Valin voru
sem ólíkust fyrirtæki, lít-
il og stór og starfandi á
ólíkum mörkuðum. Öll
hafa þessi fyrirtæki náð
góðum árangri í markaðs-
starfi sínu. Dæmisögurn-
ar eru ólíkar eins og fyrir-
tækin sem þær fjalla um.
Sumar tengjast beinlínis
því efni, sem viðkomandi
kafli fjallar um, en aðrar
fjalla á almennari hátt
um markaðsstarf við-
komandi fyrirtækis."
Að sögn Boga er hann
með ritun þessarar bókar
eingöngu að koma á fram-
færi hugmyndum og
kenningum sem hann
hefur tileinkað sér með
menntun, reynslu og
lestri bóka fræðimanna á
sviði viðskipta og mark-
aðsmála. „Kenningarnar
og hugmyndafræðin, sem
fjallað er um í bókinni,
eru að sjálfsögðu ekki
mínar.“
Eingöngu íslensk hug-
tök eru í bókinni. „Sér-
fræðiheiti um markaðs-
mál hafa náð að festa sig
misjafnlega vel í sessi. í
sumum tilfellum eru til
mörg íslensk heiti yfir
sömu hugtökin en í öðr-
um tilfellum hefur vantað
góð íslensk orð. Eg hef
valið orð sem mér hefur
fundist besta eiga við í
samráði við málfarsráðu-
naut minn, Þorstein G.
Indriðason, fram-
kvæmdastjóra Málvís-
indastofnunar Háskóla
Islands. Til glöggvunar er
íslensk-enskur orðalisti
aftast í bókinni.“
Yfir 80 teikningar og
skýringarmyndir eru í
bókinni. Þær eru teiknað-
ar af Böðvari Leós teikn-
ara.
ISLENSKUR |#DAI ETIID
IÐNAÐUR IVKAl r 1 Ulf í VERKI
8