Frjáls verslun - 01.04.1993, Blaðsíða 48
TOLVUR
TÍMAFREK PRENTUN í „POSTSCRIPT"
Helstu ritvinnslu- og umbrotskerfi
geta skilað gögnum sem „Post-
script“-kóða (PS), þ.e. á ákveðnu
vélarmáli sem er sérstaklega sniðið
fyrir grafísk verkefni, hvort sem þau
innihalda myndir eða letur eða hvort
tveggja. Til þess að geta tekið við
skjölum sem PS-kóða og prentað þau
þarf geislaprentari að hafa PS-þýð-
anda, forrit sem breytir PS-kóða í
stafrænan kóða sem prentarinn skil-
ur. Tilgangurinn með PS er auðvitað
sá að auka grafíska möguleika með
tölvu og ná meiri gæðum í frálagi,
hvort sem það er á pappír, glæru, tau
eða filmu. Þeir, sem nota útgáfukerfi
(DTP) og fella saman texta og mynd-
ir, ná bestum árangri með PS en kost-
Það tekur 34,5 mín. að prenta þessa
256 grátóna mynd í A4 stærð.
um þess fylgir sá galli að prentunin
tekur talsverðan tíma og stærsti hluti
hans fer í tjáskipti tölvu og prentara.
PS-búnaður notendakerfa er mis-
munandi að gæðum og byggingu. Sá
munur, sést oft best á því hve langur
tími líður frá því að prentskipun er
gefin og þar til prentarinn hefur lokið
við skjalið.
í WordPerfect 5.1, sem tengt er
PS geislaprentara af gerðinni Mann-
esmann Tally 904 Plus, tekur 34,5
mín. að prenta mjög grátónaða mynd
(256 grátónar) af stærðinni A4. Ýms-
um kann að þykja þetta langur tími, en
þýðing PS-kóðans tekur 34 mín. og
20 sek. en sjálf prentunin einungis 10
sek, en hafa verður í huga að þetta er
ER MS WINDOWS
NÆGILEGA ÖRUGGT?
Er MS Windows nægilega öruggt?
Þeir, sem nota MS Windows, hafa
margir lent í því að tölvan frýs skyndi-
lega í miðju verki og verður ekki
haggað. Eina ráðið er að endurræsa
og taka því sem að höndum ber. Það
fer að sjálfsögðu eftir varúðarráðstöf-
unum hvers notanda hve mikill skað-
inn verður þegar þetta gerist í Win-
dows. Staðreyndin er sú, þótt undar-
leg sé, að Microsoft hefur selt
Windows í stórum stíl þótt kerfið sé
ekki nægilega öruggt og innihaldi
ákveðnar einingar sem virka ekki full-
komlega. Þó er rétt að hafa í huga að
uppfærsla 3.1 er verulega endurbætt
og virkar mun betur en útgáfa 3.0. í
augum margra PC-notenda er MS
Windows tákn nútímans og það eina,
sem kemur til greina að nota, og þá
jafnvel látið sem Apple Macintosh hafi
aldrei verið til.
Færa má gild rök fyrir því að skjá-
stýrikerfi á borð við Windows sé auð-
veldasta og eðlilegasta aðferðin til að
stjórna tölvu og það hafi sannast með
Macintosh. Munurinn er sá að Macin-
tosh er með traust og þaulreynt kerfi
en MS Windows er ekki jafn vandað.
Það er einkum í umfangsmiklum
verkefnum sem hætta er á að Win-
dows bregðist; þegar mikið gengur á
getur vinnslan stöðvast skyndilega,
tölvan frýs eða einfaldlega endurræs-
ist sjálfkrafa. Þegar þetta kemur fyrir
í WordPerfect undir Windows („Un-
recoverable Application Error“) get-
ur orsökin legið í ritvinnslukefinu.
Það hefur sýnt sig að sumir tækja-
reklar (drivers) fyrir 256 liti (t.d. í
SVGA-ham) geta valdið fyrirvara-
lausri stöðvun. í slíku tilfelli getur
lausnin verið sú að skipta yfir í 16 lita
rekil.
Það segir sig sjálft að „frjósi" tölv-
an í miðjum klíðum geta skapast tals-
verð óþægindi þótt sjaldan sé skaðinn
mjög mikill þegar einstaklingur á í
48