Frjáls verslun - 01.04.1993, Blaðsíða 31
FORSÍDUGREIN
jáns Ragnarssonar formanns Land-
sambands íslenskra útvegsmanna og
bauð í bankann. Þessi hópur gekk
undir nafninu KR-ingar í fjölmiðlum.
Darraðardansinn um bankann hélt
svo áfram þegar sparisjóðirnir buðu í
hann. Allir vildu bankann en enginn
fékk hann.
í júní árið 1989 tilkynnti síðan Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherrra að
náðst hefði samkomulag
um að Iðnaðarbankinn,
Verslunarbankinn og Al-
þýðubankinn keyptu bank-
ann með því skilyrði að
bankarnir fjórir sameinuð-
ust.
Söluverð hins 764 mill-
jóna króna hlutafjár ríkisins
í bankanum var 1,1 millja-
rður króna. Kaupendurnir
tóku hins vegar ekki yfir
lífeyrisskuldbindingar
bankastjóra gamla Utvegs-
bankans að upphæð um
250 milljónir króna og
lentu þær því á ríkinu. Þær
jafngilda um 326 milljónum á verðlagi
núna.
SÖLUVERÐIÐ LÆKKAÐ
UM140 MILUÓNIR
Upp kom ágreiningur á milli ríkisins
og kaupendanna um virði ákveðinna
útlána og fóru þær til bankaeftirlitsins
til úrskurðar. Það kvað upp úr um að
kaupverðið skyldi lækkað um 140
milljónir króna þannig að í stað þess
að ríkið fengi 1,1 milljarð fyrir sinn 764
milljóna króna hlut fékk það 960 mill-
jónir. Sú tala jafngildir 1.253 milljón-
um á verðlagi núna og dregst auðvitað
frá þeim kostnaði sem ríkið hefur lagt
út og tekið á sig vegna gamla Útvegs-
banka íslands.
Loks má nefna að ríkið hefur fengið
eða á eftir að fá um 200 milljónir króna
úr ýmsum gjaldþrotamál-
um sem tengjast gamla Út-
vegsbankanum. Þærkoma
einnig til frádráttar við að-
stoð ríkisins.
Eftir stendur að framlag
ríkisins til gamla Útvegsb-
ankans frá árinu 1980 er
um 5.142 milljónir á verð-
lagi núna en til baka hafa
komið um 1.453 milljónir á
verðlagi núna í apríl. Mis-
munurinn er um 3,7 millja-
rðar króna sem er sú upp-
hæð sem fallið hefur í ör-
yggisnet skattborgara
vegna þessa máls.
Fristandandi hillur
Rennihurðaskápur
HILLUKERFII TAKT VIÐ TIMANN
Ofnasmiðjan hefur á boðstólum fjölbreytt úrval skjalaskápa og
hillukerfa fyrir skrifstofur, verslanir, lagera og alla þá sem vilja
nýta dýrmætt gólfpláss á sem bestan hátt.
• „Flexi mobile" skápakerfið rennur á teinum sem
lagðir eru beint á gólfið og þarf ekki að skrúfa
fasta.
• Það er mjög einfalt að bæta við alla kanta þegar
þörfin eykst.
• Úrval hillusamstæða bæði á breidd og dýpt,
gefa möguleika á útfærslum eftir þínu höfði.
Jfetíf • Hillukerfi fyrir geymslu á hverju sem er, hvort
' sem það eru skjöl eða varningur.
Háteigsvegi 7
Hiliukerfi í takt við tímann