Frjáls verslun - 01.04.1993, Blaðsíða 64
FOLK
LOGIÚLFARSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRIÍSLENSKS MARKAÐAR:
ÍSLENSKUR MATUR ER GÓD
GJÖF TIL ÚTLENDRA VINA
Logi kann vel við sig í Njarðvík og tekur þátt í íþróttalíf-
inu þar af miklum áhuga.
„íslendingar hafa
aukið viðskiptin við
okkur og við höfum náð
okkur vel á strik eftir þá
erfiðleika sem fylgdu
því að flytja í nýju flug-
stöðina. Millilendingar-
farþegum hefur fækkað
um 100.000 frá því ís-
lenskur markaður flutti
í nýju flugstöðina en á
sama tíma hefur ís-
lenskum farþegum
fjölgað. Heildarfækkun-
in er því um 85.000 far-
þegar,“ segir Logi Ulf-
arsson framkvæmda-
stjóri Islensks
markaðar.
Logi er 36 ára gamall og
varð stúdent frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð
1977. Hann var eitt ár í
verslunarháskóla í Kaup-
mannahöfn og stundaði síð-
an viðskiptafræði við Há-
skóla íslands. Eftir það vann
hann ýmis störf, m.a. við
eigin bókhaldsþjónustu, en
1986 réðst hann til íslensks
markaðar og sá um bókhald
og áætlanagerð. Haustið
1989 varð hann svo fram-
kvæmdastjóri fyrirtækis-
ins.
MEÐ HANGIKJÖT OG
OSTí MAL
„Þetta er skemmtilegt
starf og það hefur verið
gaman að glíma við erfið-
leikana og sigrast á þeim.
Reksturinn var mjög þungur
eftir 1987 þegar húsaleigan
margfaldaðist við flutning-
ana og var jafnvel haft á orði
að leggja ætti fyrirtækið
niður,“ segir Logi.
Hverju þakkar hann
þennan góða árangur?
„Fyrst og fremst góðu og
samhentu starfsfólki og svo
erum við með landsliðs-
menn í stjórnunarstörfum
hér hjá okkur,“ segir Logi.
„Við seljum eingöngu ís-
lenskar vörur og okkur hef-
ur tekist að auka söluna
miðað við hvern farþega.
Fyrstu árin voru ullarvörur
um 70% af sölunni en sá
þáttur er nú aðeins um 20%.
íslendingar litu varla hér inn
fyrstu árin en það hefur
breyst mikið. Við höfum
verið að þróa sölu á íslensk-
um matvælum til gjafa fyrir
útlenda vini og viðskipta-
menn og það hefur mælst
vel fyrir. Það er miklu
skemmtilegra að gefa eitt-
hvað sem er dæmigert fyrir
ísland, t.d. skyr eða harð-
fisk, heldur en koníak sem
fæst alls staðar. Nýjasta út-
gáfan af slíkum matarpökk-
um er malur sem menn geta
sett í hvaða mat sem er og
lagt þannig af stað út í heim
eins og sveitamenn að
gömlum sið.
Islendingar sem eru að
fara til sólarlanda kaupa líka
talsvert af mat og sælgæti
og einnig hefur blaða- og
bókasalan aukist mikið.“
ÍSTJÓRN UMFN
Eiginkona Loga er Brynja
Vermundsdóttir leikskóla-
stjóri og eiga þau þrjá syni,
15, 11 og 5 ára.
„Vinna mín er tímafrek og
ég er í stjóm Ungmennafé-
lags Njarðvíkur sem krefst
líka talsverðs tíma. Við
fluttum til Njarðvíkur fyrir
fimm árum og kunnum mjög
vel við okkur. Við höfum
kynnst mikið af góðu fólki,
m.a. í gegnum starf mitt
með UMFN. Ég hef alltaf
verið áhugamaður um
íþróttir og synir mínir æfa
bæði körfubolta og fótbolta.
Það er mjög gaman að fylgj-
ast með þeim og taka þátt í
íþróttastarfi þeirra. Við er-
um líka miklir áhugamenn
um skíði og förum til Akur-
eyrar á hverjum vetri til að
vera á skíðum,“ segir Logi
að lokum.
64