Frjáls verslun - 01.04.1993, Side 52
NORÐAN
Bræðurnir Eiður og Hreinn Gunnlaugssynir byrjuðu með Kjarnafæði í bíl-
skúr fyrir átta árum.
KJARNAFÆÐI:
AFAR MIKIL ÁHERSLA
ÁSÖLUMENNSKU
Vorið 1985 hóf Eiður Gunn-
laugsson að útbúa pitzur og sal-
öt í bílskúrnum sínum á Akur-
eyri. Bæjarbúum líkaði fram-
leiðslan vel og áður langur tími
hafði liðið var eiginkonan, Sig-
ríður Sigtryggsdóttir, komin til
starfa og auk hennar tvær stúlk-
ur sem unnu hálfan daginn.
Margt hefur breyst á þessum ár-
um. Kjarnafæði er farið úr bíl-
skúrnum og hjá fyrirtækinu
starfa 65 manns. Eigendur eru
tveir, Eiður og bróðir hans
Hreinn. Vöru-
flokkarnir eru
á þriðja
hundrað og
veltan á síð-
asta ári var
tæpur hálfur
milljarður.
TEXTI: ÁSKELL ÞÓRISSON
52
Kjarnafæði hefur keypt hluta
þeirra húseigna sem áður voru í
eigu Kaupfélags Svalbarðs-
strandar, en þar er ætlunin að
hafa grófvinnslu og e.t.v. slátr-
un þegar fram líða stundir. Gert
er ráð fyrir að ráða 10 starfs-
menn þegar Kjarnafæði hefur
starfsemi á Svalbarðseyri í
haust. Það munar um minna í
Svalbarðsstrandarhreppi.
Stöðug söluaukning leiddi til þess
að núverandi húsnæði við Fjölnisgötu
reyndist of lítið. Þá kom fram reglu-
gerð um áramótin sem fjallar um kæl-
ingu matvæla. Þetta tvennt ýtti undir
eigendur Kjarnafæðis að huga enn
frekar að framtíðinni E og þeir keyptu
húseignirnar á Svalbarðseyri.
„Þarna keyptum við tvo frysta,
sláturhús og stóra skemmu,“ sagði
Eiður Gunnlaugsson, framkvæmda-
stjóri Kjarnafæðis í samtali við FV.
„Kaupin á þessum eignum þýða ekki
að við ætlum að yfirgefa Akureyri. Ég
geri mun frekar ráð fyrir því að
Kjarnafæði verði með vinnslu á fínni
vöru á Akureyri en öll grófvinnsla
verði á Svalbarðseyri. „Við erum að
byggja þetta upp á svipaðan hátt og
gert er víða í Evrópu. Þar er algengt
að lítil sláturhús og grófvinnsla séu í
nágrenni þéttbýlisstaða en önnur úr-
vinnsla í bæjunum. Fyrst í stað mun-
um við ekki slátra á Svalbarðseyri en
svo getur farið að við neyðumst til
þess þegar fram líða stundir. Meðan
framboð er jafn mikið og raun ber
vitni borgar sig ekki að hefja slátrun.“
Hver er lykilinn að velgengni
Kjarnafæðis? Eiður sagði það vera
vinnu og aftur vinnu. En fleira kemur
til. „Allt frá upphafi höfum við haft það
að meginmarkmiði að velta ekki
vöngum yfir því sem aðrir eru að
gera. Við höfum miklu frekar reynt að
horfa á það jákvæða sem býr í starfs-
fólkinu og reynt að virkja áhuga þess.
Hver og einn býr yfir mikilli orku og ef
hún er beisluð á réttan hátt skilar það
sér margfalt til baka. Góður og já-
kvæður starfsandi er m.ö.o. það sem
skiptir mestu þegar upp er staðið og
menn reyna að meta hvað ræður vel-
gengi.“
Sölusvæði Kjamafæðis er fyrst og
fremst bundið við höfuðborgarsvæð-
ið en að sjálfsögðu fara vörurnar út
um allt land. „Við seljum jafnt til
verslana sem stofnana og fyrirtækja
og leggjum afar mikla áherslu á sölu-
mennsku. Sjálfir förum við suður
mánaðarlega og svo tekur síminn við.
Innan tíðar verður á sú breyting að í
Reykjavík verða tveir sölumenn. Þeir
verða með fax og síma í bflum sínum
og senda okkur pantanir jafnóðum og
þær berast. Sem dæmi um af-
greiðsluhraðann má nefna að pöntun
sem berst frá kaupmanni í Reykjavík
fyrir klukkan 17 verður komin til til
hans fyrir opnun verslunarinnar
næsta morgun“.
Kjarnafæði er ekki með mikla yfir-
byggingu. Réttara sagt er hún ekki til
sagði Eiður að þeir bræður hefðu
gætt sín á slíku allt frá fyrstu tíð. „En
við erum fjögur í sölustörfum", sagði
Eiður að lokum.
AÐ NORÐAN
Siglufjörður
Ólafefjöröur
Akureyrí
Askell Pórisson