Frjáls verslun - 01.04.1993, Blaðsíða 56
BÆKUR
UM 60% FYRIRTÆKJAI
BRETLANDIILLA STJÓRNAÐ
VI
Jón Snorri Snorrason,
hagfræðingur og aðstoðar-
framkvæmdastjóri Lýsingar
hf., valdi sér bókina The
Wealth Creators til að skrifa
um.
Heiti bókar: The Wealth
Creators Top people - Top
teams & Executive Best
practice.
Höíundur: Andrew Kakabadse
Útgefandi: Kogan Page Limit-
ed í London Lengd: 229 bls.
Flestar bækur sem fjalla um
stjórnun og fyrirtækjarekstur
koma frá Bandaríkjunum og
fjalla þær flestar um þarlend
fyrirtæki eðaþá japönsk. Envið-
skiptaheimurinn er ekki bara
Bandaríkin og Japan, því Evrópa
og þá sérstaklega Bretland stát-
ar af Iangri reynslu stórfyrir-
tækja. Eftir að hafa búið í rúm 4
ár í Bretlandi, þótti mér það því
við hæfi að fjalla um stjórnunar-
bók frá Bretlandi, sem kær-
komna tilbreytingu fyrir Iesend-
ur.
Bókin „The Wealth Creators" er í
raun útkoma á rannsókn sem höfund-
ur stjórnaði og náði til um 1100 for-
stjóra og framkvæmdastjóra í rúm-
lega 700 fyrirtækjum á Bretlandi.
Höfundurinn, Andrew Kakabadse,
starfar sem ráðgjafi og kennari við
Cranfield stjórnunarskólann í Eng-
landi. Hann er einn fremsti Bretinn á
sviði rannsókna í stjórnun. Eftir hann
liggja fjöldinn allur af bókum og grein-
um, sem byggja á rannsóknum sem
hann hefur stjómað.
Niðurstaða rannsóknarinnar er í
stuttu máli þessi:
Einstaklingurinn, hinn mikilhæfi
stjórnandi, er EKKI lykillinn að vel-
gegni fyrirtækja. Alltof oft er
ástæðan fyrir góðum árangri fyrir-
tækja rakin til einhvers „ofurmennis“
í forstjórastólnum þegar hin raun-
verulega ástæða er annars vegar góð
samvinna hans og framkvæmda-
stjórana í kringum hann og þeirra og
undirmanna (almennra starfmanna)
hins vegar.
Þótt aðaláhersla bókarinnar sé lögð
á að skoða samvinnuna hjá yfirstjóm
(top teams) fyrirtækja er inntak
hennar að aukin og góð samvinna inn-
an alls fyrirtækisins sé leiðin að bætt-
um árangri í rekstri þess.
Reynt er að finna hvað yfirstjómir
eiga sameiginlegt sem bestum ár-
angri hafa náð í stjómun fyrirtækja.
Reynt er að skilgreina það sem liggur
þar til grundvallar þannig að þau fyrir-
tæki sem ekki hafa náð viðunandi ár-
angri geti tileinkað sér þessi vinnu-
brögð.
UPPBYGGING BÓKARINNAR
Ólíkt venjulegum skrifum um
stjórnun verða kaflar þessarar bókar
til í lok verkefnisins en ekki í byrjun.
Höfundur ræður þannig ekki efnist-
ökum að öllu leyti heldur byggir hann
kaflana eftir útkomu rannsóknarinn-
ar.
Bókin er aðgengileg og sett upp
með skipulögðum hætti en fjallað er
um efnisþætti á alvarlegum nótum og
líkist hún því stundum kennslubók og/
eða uppflettiriti. En þó verður að
segja höfundi það til hróss að hann
léttir efnið með fjölmörgum nafn-
greindum dæmum frá þekktum fyrir-
tækjum og viðtölum við einstaklinga
sem náð hafa árangri í rekstri. Það
eru líka tekin dæmi af mistökum, en í
þeim tilfellum er gætt nafnleyndar,
þar sem áherslan er lögð á að læra af
þeim frekar en velta sér upp úr þeim.
Dæmin eru notuð til þess að renna
stoðum undir ýmsar kenningar, sem
settar eru fram, og gerir það efnið
mun áhugaverðara.
Bókin skiptist í 3 hluta og eru kafl-
TEXTI: JÓN SN0RRISN0RRAS0N
56