Frjáls verslun - 01.04.1994, Blaðsíða 52
„Stássstofur“ hótelanna í Reykja-
vík, öðru nafni svítur, eru með mikl-
um glæsibrag. Frjálsri verslun þótti
vel við hæfi að kynna þessar vistar-
verur fyrir lesendum sínum og sótti
heim fjögur hótel, Hótel Borg, Hótel
Holt, Hótel Loftleiðir og Hótel Sögu.
Það er greinilegt að enginn kotbú-
skapur er á hótelum okkar íslend-
inga.
HÓTEL HOLT
svítur gestum til boða. Svítumar eru
nokkuð mismunandi að stærð og útliti
en allar eru þær búnar vönduðum,
sérsmíðuðum leðurhúsgögnum og
öðrum húsbúnaði af bestu gerð. A
veggjum hanga málverk eftir helstu
meistara íslenskrar málaralistar.
Um 90% gestanna, sem hótelið
gista, eru útlendingar hingað komnir í
viðskiptaerindum. Hótelið leggur sig
sérstaklega fram um að höfða til þarfa
þessara gesta, sem og reyndar allra
gesta sinni, að sögn Guðmundar
Birgis Stefánssonar aðstoðarhótel-
stjóra, og er augljóst að það hefur
tekist því sömu gestimir koma aftur
og aftur til dvalar á hótelinu.
Frjáls verslun skoðaði íbúð á fjórðu
hæð Hótel Holts. íbúðin er nýstand-
sett eins og reyndar stór hluti hótels-
ins en unnið hefur verið þar að viða-
mikilli endumýjun síðustu mánuði.
Rauðbleikur litur er ráðandi í íbúðinni
jafnt á gluggatjöldum, rúmábreiðu
sem gólfteppi og leðrið á húsgöngun-
um er með rauðleitum blæ.
Á Hótel Holti standa tólf glæsilegar
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR UÓSMYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
Hótel Holt. Öryggishólf í náttborðinu.
HOTEL
GESTUM EKKII
KOT VÍSAÐ Á
HÓTEIUNUM
52