Frjáls verslun - 01.02.1996, Qupperneq 6
RITSTJORNARGREIN
HAEFFARAR
Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans,
notaði orðið Háeffarar í nýlegri blaðagrein um þá
sem vilja breyta ríkisbönkunum í hlutafélög og
einkavæða þá í framhaldi af því. Háeffarar er
skemmtilegt orð hjá Sverri.
Sverrir hefur raunar verið duglegur undanfarna
mánuði við að skrifa blaðagreinar um útlánatöp,
ábyrgðir og vexti. Greinar hans eru mjög læsilegar
en afar illkvittnislegar. Sérstaklega
bregður hann orðsins brandi að þeim
Finni Ingólfssyni og Þorsteini Páls-
syni.
Þegar rætt er um muninn á rekstri
einkabanka (háeffbanka) og ríkis-
banka felst hann fyrst og fremst í
ábyrgðinni. Undir ríkisbönkum er
strengt öryggisnet skattborgara. Þeir
eru fyrirtæki með ríkisábyrgð. Þeir,
sem leggja fé inn í slíka banka, geta
ekki tapað því þótt bankinn fari á höf-
uðið.
Gjaldþrot gamla Útvegsbankans á
miðju árinu 1987 kostaði skattborgara á fimmta
milljarð króna á núverandi verðlagi. Sparifjáreig-
endur, sem áttu fé í bankanum, höfðu sitt hins vegar
allt á þurru. Inni í þessari upphæð eru bæði framlög
til gamla bankans og heimanmundurinn til Út-
vegsbankans hf. sem síðar rann inn í íslandsbanka.
f einkabanka, sem verður gjaldþrota, eru það eig-
endur bankans, hluthafarnir, sem tapa fé sínu - og
væntanlega líka sparifjáreigendur að hluta ef gjald-
þrotið er af slíkri stærðargráðu. Strangar BlS-ör-
yggisreglur, sem teknar voru upp fyrir nokkrum
árum, ættu þó að koma í veg fyrir mikið tap spari-
fjáreigenda í einkabönkum.
Þegar einkabanki tapar fé vegna tapaðra útlána
tapa hluthafarnir. Enda hafa margir hluthafar í ís-
landsbanka verið reiðir á undanförnum árum vegna
útlánatapa bankans og talið að ekki væri nægilegt
að vísa á slæmt árferði í því sambandi heldur væri
bankanum ekki nægilega vel stjórnað. Þessi reiði
þeirra hefur að vísu ekki verið svo mikil að þeir hafi
skipt um stjórnendur bankans.
Raunar er það fremur sjaldgæft hér á landi að
stjórnendum lánastofnana sé sagt upp
störfum vegna útlánatapa. Það bendir
til þess að litið sé svo á slæmt árferði í
efnahagslífinu sé helsta orsökin fyrir
töpuðum útlánum en ekki stjórnunin.
Eða þá að rekja megi töpin svo langt
aftur í tímann að núverandi stjórnend-
ur verði hvorki dæmdir af þeim né beri
ábyrgðina.
Ekki verður svo rætt um „háeffun“
ríkisbanka út frá ábyrgð, eignaraðild
og samkeppnisskilyrðum að ekki sé
vikið að sparisjóðunum. Hverjir eiga
þá? Svarið er að þeir eiga sig sjálfir.
Þeir eru sjálfseignarstofnanir. Þeir greiða ekki út
arð fremur en ríkisbankar. Sparisjóðirnir eru mun-
aðarlausir. Hver ber ábyrgðina þar? Og við hvem
em bankarnir eiginlega að keppa þegar þeir keppa
við sparisjóðina?
Munurinn á einkabanka og ríkisbanka liggur í
ábyrgðinni. Það er mikill ábyrgðarhluti hjá skatt-
borgurum og kjósendum að hafna Háeffurum og
vilja áfram hafa kerfi ríkisábyrgða í fjármálalífinu.
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál — 57. árgangur
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir —
LJÓSMYNDARI: Bragi Þ. Jósefsson - ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. - SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Borgartún 23,
105 Reykjavík, sími 561-7575, fax 561-8646 - RITSTJÓRN: Súni 561-7575. - AUGLÝSINGAR: Sírni 561-7575 -
ÁSKRIFTARVERÐ: 2.895 kr. fyrir 1.-5. tbl., 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. —
DREIFING í bókaverslanir og sölutuma á Stór-Reykjavíkursvæðinu annast fyrirtækið Sa!a og dreifing, sími GSM 89-23334.
SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. - Edda prentstofa hf. - LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
6