Frjáls verslun - 01.02.1996, Blaðsíða 18
FORSÍÐUGREIN
ikill meirihluti fólks er and-
vígur því að Davíð Oddsson
forsætisráðherra gefi kost á
sér í embætti forseta íslands, sam-
kvæmt skoðanakönnun Frjálsrar
verslunar. Um 64% eru andvíg en
aðeins um 15% vilja að hann fari fram.
Um 21% eru hlutlaus. Andstaða við
framboð hans er ekkert síður hjá sjálf-
stæðismönnum en öðrum.
Könnun Frjálsrar verslunar var
gerð fyrstu helgina í mars. Alls tóku
503 þátt í henni af 803 sem voru í
úrtakinu. Urtakið var valið af handa-
hófi úr símanúmeraskrá. Tölfræðileg
óvissa er 4%.
í könnun Fijálsrar verslunar var
spurt: Hvort ert þú fylgjandi því, and-
víg(ur) eða hlutlaus að Davíð Odds-
son forsætisráðherra gefi kost á sér í
embætti forseta íslands?
EKKIGEFIÐKOSTÁSÉR
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur ekki gefið kost á sér í kjör til
embættis forsetaíslands. Hannhefur
er fæddur sigurvegari í stjómmálum
og vinsælasti stjómmálamaður lands-
ins þótt hann eigi sér einnig harða
andstæðinga. Hann er umdeildur. En
hann er vanur því að sigra í kosning-
um sem hann tekur þátt í.
EKKIMINNIANDSTAÐA
HJÁ SJÁLFSTÆÐISFÓLKI
Andstaða við framboð hans til for-
seta er ekkert síður hjá stuðnings-
mönnum Sjálfstæðisflokksins en öðr-
um. Þar er varla merkjanlegur munur
eftir stuðningi við flokka. Tæp 68%
sjálfstæðismanna eru á móti því að
Davíð bjóði sig fram til forseta, tæp
66% Alþýðuflokksmanna, tæp 67%
framsóknarmanna og rúm 70% Al-
þýðubandalagsmanna.
Sé horft á aldur svarenda er mest
andstaða við framboð Davíðs hjá fólki
yfir sextugt. Andstaðan minnkar síð-
an örlítið eftir því sem fólk er yngra.
Minnst er andstaða ungs fólks, undir
þrítugu, við framboð hans.
Könnun Frjálsrar verslunar um forsetakosningarnar:
Mikill meirihluti fólks er andvígurþví að Davíö Oddsson forsætisráðherra gefi
engu að síður verið í umræðunni sem
frambjóðandi þótt hann hafi að vísu frá
upphafi ekkert viljað segja um málið.
En hann hefur heldur ekki viljað slá
umræðuna um framboð algjörlega af.
Þess vegna er stóra spumingin í hug-
um fólks þessi: Fer Davíð fram eða
ekki? Það eru ekki síst flokkssystkini
hans sem spurt hafa sig að þessu.
Mikil andstaða fólks við að Davíð
gefi kost á sér í forsetakosningamar
kann að koma sumum á óvart. Davíð
Útkoman flokkuð eftir aldri svar-
enda. Minnst er andstaðan við fram-
boð Davíðs hjá fólki undir þrítugu.
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON OG FL.
Skipting eftir aldri
Aldur Fylgjandi Andvígir Hlutlausir
Eldri en 60 11% 73% 16%
46-60 10% 70% 20%
31 -45 17% 61% 22%
Yngri en 31 22% 53% 25%
Samtals: 15% 64% 21%
18