Frjáls verslun - 01.02.1996, Síða 24
Fáskrúðsfirðingurinn Þröstur Júlíusson, 43 ára húsa-
smíðameistari, ásamt syni sínum Bjartmari, 23 ára,
fyrir utan Kentucky í Kaupmannahöfn. Þröstur flutti út
til Svíþjóðar af hreinni ævintýraþrá fyrir þrettán árum
og opnaði fyrsta Kentucky kjúklingastaðinn í Kaup-
mannahöfn fyrir tíu árum.
Fyrir um þrettán árum flutti fiöl-
skylda Fáskrúðsfirðingsins Þrastar
Júkussonar, 43 ára, út til bæjarins
Staffanstorp sem er rétt fyrir utan
Malmö í Svíþjóð. Austurlandið var
kvatt af hreinni ævintýraþrá.
Þrátt fyrir að hafa sinnt ýmissi
smíðavinnu ytra opnaði Þröstur
fyrsta Kentutcky staðinn í Danmörku
aðeins þremur árum eftir að hann
fluttist út, eða himi 24. maí 1986. í
nóvember síðastliðnum opnaði hann
síðan Kentucky stað númer tvö í
Kaupmannahöfn.
Þröstur er með svonefnt sérleyfi,
„franchise", til að reka staðina. Það
var Stefán Ámason, sem nú býr í
Bandaríkjunum, sem ýtti Þresti út í
að fá leyfi fyrir Kentucky í Danmörku.
Og að sögn Þrastar var það þessi
sami Stefán sem einnig hvatti Helga
Yilhjálmsson á sínum tíma til að opna
Kentucky á íslandi.
Aðeins fimm Kentucky kjúklinga-
staðir eru á Norðurlöndunum, þrír á
íslandi og tveir í Danmörku. „Öll fjöl-
skyldan er á kafi í þessu,“ segir
Þröstur. Hann er giftur Ingibjörgu
Sigurðardóttur, sem einnig er Fá-
skrúðsfirðingur, og eiga þau þrjá
syni; Bjartmar, 23 ára, Snorra, 14
ára, og Gylfa, 7 ára. Bjartmar er
rekstrarstjóri og á honum mæðir allur
daglegur rekstur.
Þröstur segir að rekstur Kentucky
hafi gengið vel. „Þetta er mikil vinna
og það tekur auðvitað nokkum tíma
að byggja svona stað upp þótt merkið
sé þekkt. En Danir kunna að meta
Kentucky.“
Uppi eru áform hjá Þresti að opna
fleiri Kentucky staði í Danmörku á
næstunni. „Markaðurinn sker úr um
það hversu marga staði við opnum til
viðbótar en ég held að enn sé rými
fyrir nokkra til viðbótar í Kaupmanna-
höfn.“
Þrátt fyrir að Þröstur búi handan
landamæranna við Kaupmannahöfn, í
Svíþjóð, hefur hann ekki áhuga á að
færa út kvíarnar með Kentucky utan
Danmerkur.
Birgir Þór Bieltvedt, 29 ára fram-
kvæmdastjóri Domino’s á íslandi, er á
leiðinni út til Danmerkur til að koma
Domino’s á koppinn þar. Domino’s í
Danmörku verður í eigu íslendinga og á
ættir að rekja til Domino’s á íslandi.
ÍSLENSK ÚTRÁS
/
Islendingar reka skyndibitastaðina Subway ogKentucky íDanmörku og
nslendingar eru sagðir banda-
rískari í hugsun en aðrar
Norðurlandaþjóðir. Hvort
sem það er ástæðan eða ekki er gam-
an til þess að vita að bandarískir
skyndibitahringir setja traust sitt á ís-
lendinga.
íslendingur hefur rekið Kentucky í
Danmörku í tíu ár og um þessar
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON
24
MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON OG FLEIRI
mundir eru tvær íslenskar fjölskyldur
að flytja til Kaupmannhafnar og opna
fyrsta Subway staðinn í Danmörku.
Þá fer og Birgir Bieltvedt, fram-
kvæmdastjóri Dominos á íslandi, út