Frjáls verslun - 01.02.1996, Blaðsíða 25
Helgi Rúnar Óskarsson, markaðsstjóri hjá Fróða, og Sigurð-
ur Jakobsson, upptökustjóri á Stöð 2, eru mágar. Asamt
konum sínum opna þeir fyrsta Subway staðinn í Danmörku
með vorinu. Myndin var tekin í Danmörku á dögunum.
---ujorg
Tvær íslenskar fjölskyldur eru um
þessar mundir að flytjast út til Kaup-
mannahafnar til að opna fyrsta Sub-
way staðinn í Danmörku. Þetta eru
hjónin Sigurður Jakobsson, 43 ára,
fyrrum upptökustjóri á Stöð 2, og
Björg Óskarsdóttir, 40 ára, hár-
greiðslumeistari sem rekið hefur há-
greiðslustofuna Permu við Eiðistorg
til margra ára. Hin hjónin eru Helgi
Rúnar Óskarsson, 28 ára, markaðs-
stjóri hjá Fróða og bróðir Bjargar, og
Ásdís Ósk Erlingsdóttir, 28 ára.
Að sögn Helga Rúnars kviknaði
hugmyndin fyrst árið 1993 þegar þau
SUBWAY
Sigurður og Björg heimsóttu Helga
Rúnar og Ásdísi til Bandaríkjanna.
Helgi var þá að útskrifast sem við-
skiptafræðingur. Þótt hugmynd hafi
fæðst var ekkert gert með hana fyrst
um sinn. í fyrra leituðu þau hins vegar
eftir því við Subway í Bandaríkjunum
að opna stað á hinum Norðurlöndun-
um, enda Subway þá búið að opna á
íslandi.
Eftir þetta tóku hjólin að snúast
nokkuð hratt. Málaleitan þeirra var
vel tekið og fengu þau sérleyfi fyrir
Subway í Danmörku. Fyrsti staður-
inn verður opnaður á næstunni. Að
sögn Helga er ýmislegt sem gerir
Kaupmannahöfn að spennandi kosti
fyrir Subway. Landið sé tiltölulega lít-
ið og þéttbýlt, þangað komi margir
ferðamenn og síðast en ekki síst sé
sterk brauðmenning í Danmörku.
Þijátíu ár eru síðan að aðaleigandi
Subway, Fred Deluca, stofnaði fyrsta
Subway staðinn í Bandaríkjunum. Nú
eru yfir 11.500 Subway staðir í 37
löndum um allan heim.
DOMINO’S
Birgir Þór Bieltvedt, 29 ára fram-
kvæmdastjóri Domino’s á íslandi, fer
út til starfa í Danmörku á næstunni og
undirbýr opnun fyrsta Domino’s stað-
arins þar í haust. Domino’s í Dan-
mörku verður í eigu íslendinga og
rekur ættir sínar til þeirra sem standa
að Domino’s á íslandi.
Domino’s er að styrkja hlut sinn á
alþjóðlegum mörkuðum, eins og t.d. í
Asíu. Fyrirtækið hefur einnig mikinn
augastað á Evrópu og ætlar að efla
söluna þar. í ljósi þessa sýna þeir
Domino’s á íslandi mikið traust með
því að láta þá, sem að því standa,
ryðja brautina í Danmörku. Fram
undan eru hugsanlega fleiri landvinn-
ingar. Nái Domino’s í Danmörku sér á
skrið er afar líklegt að kvíarnar verði
færðar út til hinna Norðurlandanna.
Domino’s á íslandi hefur gengið vel
frá því fyrsti staðurinn var opnaður
við Grensásveg himi 16. ágúst
1993. Slegin hafa verið met í sölu.
Sé eingöngu miðað við þölda
seldra pizza - og er þá ekki miðað
við höfðatölu eins og yfirleitt er
gert - er talið að Domino’s við
Grensásveg sé í þriðja sæti í sölu í
heiminum.
Fyrirtækið á bak við Domino’s á
íslandi heitir Pizza-Pizza. Hlutafé-
lagið Futura á 90% í því fyrirtæki
og er með umboð og framleiðslu-
leyfi frá Domino’s Pizza Intema-
tional.
í SKYNDIBITUM
Domino’s bætist viðþegar líður á árið. Þetta er ánægjulegt framtak
til Kaupmannahafnar í vor og undir-
býr opnun fyrsta Domino’s staðarins í
Danmörku með haustinu.
Skyndibitamarkaðurinn í Dan-
mörku er mun vanþróaðri en á ís-
landi. Einna mest hefur kveðið að
McDonalds. Jarðvegur fyrir alþjóð-
lega skyndibitastaði í Kaupmanna-
höfn er hins vegar talinn góður. Ekki
skemmir það heldur fyrir hvað borgin
er fjölsótt af ferðamönnum.
25