Frjáls verslun - 01.02.1996, Blaðsíða 26
STJORNUN
TRUNAÐAR
Trúnaðarbresturinn felst íþví að Landsbankinn og forstjóri Samskipa ráða meiri
FRÉTTASKÝRING
Jón G. Hauksson
□ að skemmtilega við leikritið í Samskipum er hversu
margir stórleikarar hafa verið á leiksviðinu. Þeir
eru allir þekktir og duglegir menn í viðskiptum.
Stjómin hefur verið skipuð þeim Gunnar Jóhannssyni í
Fóðurblöndunni,
Jóni Pálmasyni í Hofí
hf. Geir Magnús-
syni, forstjóra Oku-
félagsins, Axel
Gíslasyni, forstjóra
VÍS, og Þorsteini
Má Baldvinssyni, al-
þjóðlega útgerðar-
jöfrinum að norðan,
framkvæmdastjóra
Samherja hf. í stóli
forstjóra situr síðan
Ólafur Ólafsson.
Þeir Geir og Axel
tilheyra gamla Sam-
bandsarminum en
Ólafur á raunar þangað ættir að rekja líka. Þeir þrír standa
vel saman. Þeir Gunnar, Jón og Þorsteinn Már komu inn í
fyrirtækið sem liðsheild og voru í meirihluta stjómar, með
þrjá menn af fímm, þótt þeir hefðu ekki hlutafjáreign á bak
við sig nema fyrir einum manni. Nú situr Þorsteinn Már í
stjóm Samskipa með þeim Geir og Axel eftir að stjómar-
formaðurinn, Gunnarjóhannsson, ogJón Pálmason sögðu
sig úr stjóminni á dögunum.
Það hefur legið fyrir í viðskiptalífínu frá því í haust að
stjórnarformaðurinn í Samskipum, Gunnar Jóhannsson,
væri að reyna að selja hlut sinn í fyrirtækinu ásamt þeim
Hofsmönnum en Hof hf. er eignarhaldsfélag sem á Hag-
kaup og Skip hf. Það eru svo Skip sem eiga hlutinn í
Samskipum.
Fyrst þeir
Gunnar og Jón
sögðu ekki af sér
þegar síðastliðið
haust kom það
svolítið á óvart í
viðskiptalífinu að
þeir skyldu segja
af sér í stjóm Sam-
MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON OG FLEIRI
26
Gunnar Jóhannsson, fráfarandi stjórnarformaður Sam-
skipa.
skipa á dögunum þegar svo stutt er í aðalfund. Að vísu
hefðu þeir verið snarlega felldir úr stjórninni á þeim fundi.
ÁHUEKKISKAPSAMAN
Gunnar hefur gefið upp í fjölmiðlum að trúnaðarbrestur
hafí orðið við forstjóra Samskipa, Ólaf Ólafsson. Meira gaf